Kópavogsmódelið leggst þyngra á barnafjölskyldur en Reykjavíkurleiðin Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir skrifa 22. febrúar 2026 14:03 Málflutningur Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðismanna í Reykjavík, þar sem hún fjallar um hina nýkynntu Reykjavíkurleið í leikskólamálum, vakti athygli okkar í síðastliðinni viku. Þar gagnrýnir Hildur leiðina fyrir það að reyna að stýra fjölskyldum í skertan vistunartíma og þannig færa vandamál leikskólakerfisins yfir á herðar vinnandi fólks. En Hildur segir að „Reykjavíkurleiðin leiði af sér bæði þjónustuskerðingu fyrir foreldra og auknar álögur fyrir vinnandi fólk - og fyllir foreldra sem fullnýta þjónustu leikskólanna óþarfa samviskubiti.” Þessar staðhæfingar eru í hrópandi mótsögn við yfirlýsingar Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Sjálfstæðismanna í Kópavogi, sem kallaði mun róttækari breytingar í þessa átt hér í bæ „allt aðra þjónustu og mun betri“ en þá sem áður var. Sjálfstæðisflokkurinn, sem og Hildur sjálf, hefur keppst við að mæra „Kópavogsmódelið“ og kallað eftir því að fleiri sveitarfélög taki það upp. Nálgun Reykjavíkurborgar í leikskólamálum er skynsamlegri og mætir þörfum barnafjölskyldna betur en Kópavogsmódelið. Kópavogsmódelið gæti verið gulrót en er nú pískur Í Kópavogi var farið of geyst í of harðar breytingar á leikskólakerfinu í takmörkuðu samráði við foreldra. Þar er einungis boðið upp á 30 klst. gjaldfrjálsa vistun á meðan Reykjavíkurleiðin ætlar að bjóða upp á 36 klst. gjaldfrjálst. Það skýtur því skökku við að heyra Sjálfstæðismenn í Reykjavík koma með harða gagnrýni á þær breytingar sem verið er að boða þar. Breytingarnar sem voru gerðar í Kópavogi hafa nefnilega verið harðlega gagnrýndar af foreldrum, hagsmunasamtökum og verkalýðsfélögum og rannsóknir benda til þess að mikil óánægja ríki um fyrirkomulagið. Vandamálið í Kópavogi er að kostnaðarþátttaka foreldra hélst óbreytt eftir innleiðingu á Kópavogsmódelinu Það þýðir að foreldrar, á heildina litið, borga um 12% af kostnaði við hvert leikskólapláss bæði fyrir og eftir breytingarnar. Raunar stóð upphaflega til að tvöfalda kostnaðarþátttöku foreldra en við það var hætt eftir hörð mótmæli. Á mannamáli þýðir þetta að þau 70% foreldra í Kópavogi sem ekki hafa tök á að fá gjaldfrjálsa vistun á leikskólum, og borga þess í stað dýrustu leikskólagjöld landsins, niðurgreiða leikskólagjöldin fyrir þau 30% sem geta nýtt sér gjaldfrjálsa vistun. Betra hefði verið að halda í öflugt þjónustustig og láta sveitarfélagið koma til móts við foreldra til að fjármagna gjaldfrjálsan leikskóla fyrir vistun sem hefði létt á mönnun. Þannig hefði verið hægt að halda leikskólagjöldum fyrir þau sem notast við hefðbundna 8 tíma vistun umtalsvert lægri en nú er. Hér að neðan er munurinn á leikskólagjöldum hjá sambúðarfólki í millistétt sem að eiga tvö börn eins og þau eru í Kópavogi sem stendur og koma til með að verða í Reykjavík eftir breytingarnar. Við teljum það nokkuð augljóst hvor leiðin leggst þyngra á barnafjölskyldur. Tekið skal fram að ef tekið er tillit til tekjutengdra afslátta er munurinn enn meiri á Reykjavík og Kópavogi, þar sem mun fleiri foreldrar koma til með að njóta afsláttar í Reykjavík en í Kópavogi. Forgangsröðum þjónustu í þágu barnafólks Hildiur tekur réttilega fram í sínum pistli að öflugt leikskólakerfi sé eitt mikilvægasta jafnréttistólið á sveitarstjórnarstiginu. Það geta undirritaðir jafnaðarmenn tekið undir enda hefur leikskólakerfið og breytingar á því sem Samfylkingin og forverar hennar leiddu verið veigamikill þáttur í framþróun jafnréttismála á Íslandi síðastliðna áratugi. Þetta er spurning um pólitískan vilja; Sjálfstæðismenn virðast vera tilbúnir að leggja aukna gjaldtöku á barnafólk í sveitarfélögum þar sem þeir eru í meirihluta en gera aðrar kröfur í öðrum sveitarfélögum. Stefna Samfylkingarinnar er sú sama óháð því hver er við stjórnvölinn - að forgangsraða þjónustu í þágu barnafólks jafnt um allt land. Áherslur okkar í Samfylkingunni í Kópavogi eftir komandi kosningar verða í þá átt að koma til móts við barnafjölskyldur með það að sjónarmiði að létta álögur á barnafólk með því að lækka leikskólagjöld, auka systkinaafslátt og taka skref til að auka fjölda klukkustunda sem standa til boða gjaldfrjálst. Það á ekki að refsa barnafjölskyldum fyrir að þurfa að nýta sér þjónustu sveitarfélagsins. Höfundar skipa 1. og 2. sæti lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Leikskólar Samfylkingin Jónas Már Torfason Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar