Kaupmáttur lækkað í tuttugu ár Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 23. febrúar 2026 08:31 Öll höfum við á undanförnum misserum fundið fyrir því hversu allt í samfélagi okkar hefur hækkað. Er þar ekkert undanskilið, hvorki nauðsynjavörur né sjálfsögðu þjónusta. Allt virðist stefna í að meirihluti þingmanna á Alþingi samþykki umdeilt frumvarp um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu en það kemur til með að hjálpa fólki sem hefur litla möguleika til að bæta stöðu sína og á sífellt á hættu að dragast aftur úr í kaupmætti. Afstaða-réttindafélag styður öll góð mál sem miða að því að bæta hag þeirra verst settu og má því til með að benda á annan hóp sem lengi hefur dregist aftur úr og þrátt fyrir augljósa þörf fær ekki endurskoðun á kjörum sínum. Dagpeningar hafa ekki hækkað í tvo áratugi, eða frá árinu 2006. Á sama tíma hafa þóknanir fyrir störf og fæðisfé hækkað lítillega. Það er náttúrlega ótrúlegt að grunnframfærsla í fangelsum hafi staðið í stað öll þessi ár en samkvæmt verðlagsreiknivél Hagstofu Íslands jafngilda 630 krónur árið 2006 tæpum 1.700 krónum í dag. Orðalag laganna hljómar á þá leið að ráðherra ákveði fjárhæð dagpeninga og að þeir skuli miðast við að fangi eigi fyrir brýnustu nauðsynjum til persónulegrar umhirðu. Auðséð er á ákvæðinu að það kallar á reglulega endurskoðun og því er einnig ljóst að stjórnvöld hafa gjörsamlega vanrækt þá skyldu sína. Höfum það á hreinu að fangar eru oftar en ekki fólk sem stendur þegar höllum fæti í samfélaginu. Margir koma úr fátækt, hafa á bakinu skuldir og jafnan lítinn stuðning frá fjölskyldu. Að setja þá inn í kerfi þar sem grunnframfærsla hefur verið frosin í tvo áratugi er ekki endurhæfing, það er einangrun frá þróun samfélagsins. Afstaða-réttindafélag skorar á þá þingmenn sem hyggjast samþykkja frumvarpið um tengingu bóta við launavísitölu að taka upp við dómsmálaráðherra hvort ekki standi til að leiðrétta kjör fanga eins og annarra sem höllum fæti standa í samfélaginu. Höfundur er formaður Afstöðu-réttindafélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ingi Þóroddsson Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Öll höfum við á undanförnum misserum fundið fyrir því hversu allt í samfélagi okkar hefur hækkað. Er þar ekkert undanskilið, hvorki nauðsynjavörur né sjálfsögðu þjónusta. Allt virðist stefna í að meirihluti þingmanna á Alþingi samþykki umdeilt frumvarp um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu en það kemur til með að hjálpa fólki sem hefur litla möguleika til að bæta stöðu sína og á sífellt á hættu að dragast aftur úr í kaupmætti. Afstaða-réttindafélag styður öll góð mál sem miða að því að bæta hag þeirra verst settu og má því til með að benda á annan hóp sem lengi hefur dregist aftur úr og þrátt fyrir augljósa þörf fær ekki endurskoðun á kjörum sínum. Dagpeningar hafa ekki hækkað í tvo áratugi, eða frá árinu 2006. Á sama tíma hafa þóknanir fyrir störf og fæðisfé hækkað lítillega. Það er náttúrlega ótrúlegt að grunnframfærsla í fangelsum hafi staðið í stað öll þessi ár en samkvæmt verðlagsreiknivél Hagstofu Íslands jafngilda 630 krónur árið 2006 tæpum 1.700 krónum í dag. Orðalag laganna hljómar á þá leið að ráðherra ákveði fjárhæð dagpeninga og að þeir skuli miðast við að fangi eigi fyrir brýnustu nauðsynjum til persónulegrar umhirðu. Auðséð er á ákvæðinu að það kallar á reglulega endurskoðun og því er einnig ljóst að stjórnvöld hafa gjörsamlega vanrækt þá skyldu sína. Höfum það á hreinu að fangar eru oftar en ekki fólk sem stendur þegar höllum fæti í samfélaginu. Margir koma úr fátækt, hafa á bakinu skuldir og jafnan lítinn stuðning frá fjölskyldu. Að setja þá inn í kerfi þar sem grunnframfærsla hefur verið frosin í tvo áratugi er ekki endurhæfing, það er einangrun frá þróun samfélagsins. Afstaða-réttindafélag skorar á þá þingmenn sem hyggjast samþykkja frumvarpið um tengingu bóta við launavísitölu að taka upp við dómsmálaráðherra hvort ekki standi til að leiðrétta kjör fanga eins og annarra sem höllum fæti standa í samfélaginu. Höfundur er formaður Afstöðu-réttindafélags.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar