Erlent

Fyrr­verandi sendi­herra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein hand­tekinn

Eiður Þór Árnason skrifar
Peter Mandelson harmaði að Jeffrey Epstein hefði verið dæmdur fyrir að falast eftir kynlífi hjá ólögráða stúlku í tölvupósti sem hann sendi honum árið 2008.
Peter Mandelson harmaði að Jeffrey Epstein hefði verið dæmdur fyrir að falast eftir kynlífi hjá ólögráða stúlku í tölvupósti sem hann sendi honum árið 2008. AP/Carl Court

Peter Mandelson, fyrrverandi sendiherra Breta gagnvart Bandaríkjunum var handtekinn í dag vegna gruns um brot í opinberu starfi. Hinn 72 ára Mandelson missti sendiherrastöðuna í september eftir að nánara ljósi var varpað á vinskap hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.

Lögregla hóf að rannsaka Mandelson fyrr í þessum mánuði eftir að ríkisstjórn Keirs Starmer afhenti gögn um samskipti sendiherrans fyrrverandi við Epstein. Reuters greinir frá. Breska ríkisútvarpið BBC segir að lögreglumenn hafi sést leiða Peter Mandelson í burtu frá heimili sínu í London fyrir skömmu. 

„Lögreglumenn hafa handtekið 72 ára gamlan mann, grunaðan um misferli í opinberu starfi,“ sagði í yfirlýsingu frá lögreglunni í London, í tengslum við rannsókn á fyrrverandi ráðherra.

„Hann var handtekinn í Camden mánudaginn 23. febrúar og hefur verið færður á lögreglustöð í London til yfirheyrslu.“

„Þetta kjölfar þess að húsleitarheimildir voru veittar fyrir tvö heimilisföng á Wiltshire- og Camden-svæðunum.“

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×