Af með hausana, burt með styttuna Sigurður Haraldsson skrifar 24. febrúar 2026 07:31 Séra Friðrik Friðriksson hafði legið í gröf sinni í 62 ár þegar Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins ákvað að hlaupa á eftir viku gömlu æsingstali um þennan stofnanda KFUM, KFUK, Vals, Fóstbræðra, skátafélagsins Væringja og Hauka. Borgarfulltrúinn lagði til í borgarráði að stytta af honum í Lækjargötu yrði fjarlægð hið snarasta. Flestir þekkja forsöguna. Í bók um ævi séra Friðriks hafði birst frásögn um að hann hefði leitað á einn viðmælanda bókarhöfundar þegar sá var ungur að árum. Sá viðmælandi kom aldrei fram undir nafni og hefði því átt að taka frásögnina með fyrirvara. Þar fyrir utan var sagt í bókinni að séra Friðrik hefði haft dálæti á drengjum – dálæti sem birtist með órækum hætti í stofnun KFUM, knattspyrnufélaganna tveggja og síðar KFUK. „Í ljósi fjölmiðlaumræðu“ Þessar óljósu lýsingar nægðu borgarfulltrúanum ekki. Þó svo að séra Friðrik hafi í lifanda lífi ekki verið sakaður um kynferðisbrot og sex áratugir liðnir frá andláti hans, þá taldi hún engan tíma mega missa að fjarlægja styttuna „í ljósi ásakana um meint kynferðisbrot og fjölmiðlaumræðu“. Fullyrti borgarfulltrúinn að sýna þyrfti þolendum virðingu, jafnvel þó engir þolendur væru tiltækir. Meira þurfti ekki til, ekki frekar en að á öldum áður nægði að saka konur um að vera nornir til að vera brenndar á báli. Heykvíslarnar í boði borgarfulltrúa Flokks fólksins voru þar með komnar á loft og aðrir borgarfulltrúar fljótir að stökkva um borð í réttsýnisvagninn. Aðeins tók eina viku að ásaka og dæma. Fjölmenni var í kapphlaupinu um að elta fjölmiðlaumræðuna. Múgæsingur í boði borgarfulltrúa Tillagan um að fjarlægja styttuna af séra Friðrik í Lækjargötu var samþykkt í borgarstjórn og aldrei þessu vant snarlega gengið í að framfylgja henni. Samt á borgin ekki styttuna, heldur stóðu velvildarmenn séra Friðriks að gerð hennar, á annað hundrað manns. Fjöldi velvildarmanna séra Friðriks stóð að því að árið 1993 var kapella kennd við hann vígð á Hlíðarenda, en þá voru 125 ár liðin frá fæðingu hans. Æsingstillaga Kolbrúnar Baldursdóttur var neisti nornaveiðanna. Tillagan kynti undir upphlaupi og fordæmingum á séra Friðrik sem enginn verður sæmdur af. Tillaga hennar leiddi til múgæsings sem notaður var til að réttlæta skemmdarverkið á styttunni. Hefðu samferðamenn séra Friðriks sýnt þá viðurkenningu að reisa af honum styttu í lifanda lífi ef vitneskja hefði verið um óviðurkvæmilegri hegðun hans við unga drengi? En borgarfulltrúinn hafði engan áhuga á stóru myndinni af séra Friðrik. Henni nægðu meintar ásakanir – og auðvitað fjölmiðlaumræðan. Af með hausana Kolbrún Baldursdóttir hefur nú tekið sæti á hinu háa Alþingi sem þingmaður Flokks fólksins. Almenningur hlýtur að vona að þar stundi hún ekki sömu heykvíslavinnubrögð og raunin var í borgarstjórn gagnvart æru séra Friðriks Friðrikssonar. Af með hausana æpti drottningin í sögunni um Lísu í Undralandi. Burt með styttuna æpti borgarfulltrúi Flokks fólksins. Höfundur er rafvirkjameistari og einn af drengjum Sr. Friðriks. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mál séra Friðriks Friðrikssonar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar