Þetta er skrýtin latína Ingvar S. Birgisson skrifar 24. febrúar 2026 11:47 Allt frá tímum Snorra Sturlusonar hefur latína óslitið verið kennd á Íslandi með einum eða öðrum hætti. Langt fram á 20. öldina sinntu menntaskólar latínukennslu og sóttu þannig í hefðir gömlu málfræðiskólanna, þ.m.t. Menntaskólinn á Akureyri, en á endanum varð einungis einn eftir, Menntaskólinn í Reykjavík. Af fréttum að dæma er nú áfram verið að kroppa af latínukennslunni í þessari síðustu varðstöð klassískra mennta og útlit er fyrir að hún verði að engu á næsta áratug eða tveimur, nema eitthvað breytist. Ég er sjálfur stúdent frá fornmálabraut I í Menntaskólanum í Reykjavík. Þessi braut var ástæðan fyrir því að ég sótti um í skólanum á sínum tíma. Hann er fjarri því að vera fullkomin menntastofnun en ef ég þyrfti að velja einn kost þá er hann sá að skólinn býður upp á námsbrautir sem henta nemendum sem vilja sökkva sér í áhugamál sín. Það er sérstök upplifun að vera í framhaldsskóla og hefja daginn á tvöföldum tíma í latínu, sem er svo fylgt eftir með kennslu í forn-grískri og rómverskri listasögu og heimspeki. Þá er forn-grískukennsla jafnvel eftir hádegi en hún á það til að gleymast í umræðunni um latínuna. Á fornmálabraut er líka þetta hefðbundna, íslenska, danska og einhver stærðfræði en hryggjarstykkið í námsbrautinni er bara það sem við má búast, klassísk menntun og tungumálakennsla eins og hún gerist best. Rúm Prókrústesar Fullyrða má að þetta sé einstakt í íslensku framhaldsskólaumhverfi, sem á að öðru leyti margt sameiginlegt með rúmi Prókrústesar. Ef gestirnir voru of stuttir fyrir rúmið þá teygði Prókrústes úr gestunum með ofbeldisfullum hætti þar til þeir fylltu út í rúmið. Voru gestirnir of langir var lausnin einfaldlega sú að höggva neðan af þeim. Til þess að koma þessum punkti til skila hefði vissulega nægt að vísa til þess að íslenskir framhaldsskólar „steypi nemendur í sama mót“, en þá hefði þessi fróðleikur um Prókrústes ekki komist að. Það er staðreynd að bóklegt nám í flestum framhaldsskólum er afar svipað og verður líkara með hverju árinu. Einhverjum kann að finnast það jákvætt, en aðrir sjá fegurðina í fjölbreytninni í þessum efnum. Nemendur eru jú ekki allir eins. Það er að mörgu leyti skiljanlegt að latínukennsla sé skorin niður þegar einungis níu nemendur skrá sig á fornmálabraut. Rekstrarlega er þetta ekki galin ákvörðun og samsvarar hún sér eflaust ágætlega í Excel-skjali. Í rekstri íslenska ríkisins má þó finna hundruðir, ef ekki þúsundir, dæma um verri nýtingu fjármagns en þessa. Enginn vafi leikur á því að mun meiri menningarverðmætum er kastað fyrir borð en sem nemur þeim krónum sem hér eru undir. Óháð því að tekið sé skref í áttina að því að slíta nær þúsund ára menntahefð á Íslandi, þá felur kennslan í sér þjónustu við nemendur sem eru umfram allt fróðleiksfúsir og í senn kyndilberar menningarheims sem á sér engan líka. Þetta er andlega þenkjandi menntun og á tímum þar sem intróspektíf hugsun er orðin að engu er klassísk menntun vin í eyðimörkinni. Ef eitthvað barn vill demba sér í heimspeki, listasögu og þýðingar á textum eftir Sesar fyrir átján ára aldur þá gæti ég á þessum tímum vart hugsað mér betri ráðstöfun á útgjöldum menntamála en að styrkja þá vegferð. Þekkingu á sögu og menningu er verulega ábótavant Hitt er það, að það lýsir ákveðnum veruleika að fáir láti sig varða klassíska menntun og sögu yfirleitt. Það verður seint sagt að fræðilega nálgunin í seinni tíð ýti undir áhuga á vestrænni menningu en það er efni í aðra og lengri grein. Aukinheldur hefur ekki verið í tísku að leggja áherslu á fortíðina þegar fólk upplifir óvissu um framtíðina. Áherslur í menntamálum hafa skiljanlega snúið að samfélagi framtíðarinnar, en þó án tillits til þess að þekking á fortíðinni, sögu okkar og gildum, er nauðsynleg til þess að geta fótað sig í síbreytilegu samfélagi framtíðarinnar. Höfundur er lögmaður og stúdent af fornmálabraut Menntaskólans í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingvar Smári Birgisson Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar