Griðastaður í amstri dagsins Rósa Björg Brynjarsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 19:47 Þegar skammt var liðið á árið 2019 vakti fyrrverandi biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, máls á því á fundi kirkjuráðs að þjóðkirkjan beitti sér fyrir opnun dagseturs fyrir heimilislausar konur. Hugmyndinni var strax vel tekið og undirbúningur að stofnun þess hófst. Skjólið, eins og dagsetrið var nefnt, opnaði dyr sínar í fyrsta skipti rétt nær tveimur árum síðar eða 25. febrúar 2021 í kjallara Grensáskirkju. Skjólið á því fimm ára afmæli um þessar mundir. Þessi ár hefur Þjóðkirkjan og Hjálparstarf kirkjunnar boðið konur sem búa við heimilisleysi, eru nýkomnar í búsetuúrræði eftir heimilisleysi eða búa við ótryggar aðstæður, velkomnar. Í Skjólinu geta konurnar hvílt sig, borðað saman auk þess sem þeim stendur til boða hreinlætisaðstaða. Þá eru starfskonur Skjólsins til staðar til að sinna þörfum kvennanna fyrir samveru og nánd. Á þessum fimm árum sem Skjólið hefur verið starfrækt hafa 166 konur heimsótt Skjólið en þær eru á aldrinum 18 – 74 ára. Eins og nafnið gefur til kynna er konunum veitt skjól ásamt því að uppfylla grunnþarfir þeirra fyrir næringu, hvíld og hreinlæti. Í Skjólinu upplifa konur stöðugleika, þær upplifa sig síður einangraðar og fá að tilheyra. Konunum er mætt með hlýju þar sem skaðaminnkandi hugmyndafræði og áfallamiðuð nálgun er höfð að leiðarljósi. Reynslan hefur sýnt að konunum finnst nauðsynlegt að geta komið í Skjólið á daginn, hitt þar aðrar konur og fá samveru, hlýju og góðan mat. Þær upplifa öryggi og líta á Skjólið sem griðastað þar sem ríkir ró og næði sem er þeim, eins og okkur öllum, nauðsynlegt í amstri dagsins. „Starfskonur sinna öllum í Skjólinu með kærleik í hjarta, þær eru samviskusamar og tilbúnar að taka á móti þeim sem minna mega sín. Þær rétta út hönd sína okkur til stuðnings.“ Svo hljóðar lýsing konu sem sækir Skjólið reglulega en konurnar eru ánægðar með skýrar reglur sem þar gilda. Þær kunna ekki síður að meta stuðninginn sem þær fá til að gera betur og upplifa að þær séu einhvers virði. Frá upphafi hefur starfið í Skjólinu verið unnið á forsendum kvennanna sjálfra og þeim mætt á þeim stað sem þær eru hverju sinni. Til viðbótar við hversdagslegt amstur geta konurnar mælt sér mót við fagaðila, hvort sem það er vegna umsýslu innan félagslega kerfisins eða þegar þær þurfa að leita sér þjónustu heilbrigðiskerfisins. Þetta auðveldar þeim að sækja þjónustu sem þær eiga rétt á, en myndu oft neita sér um að öðrum kosti. Þau sem veita þjónustuna, telja Skjólið mikilvægan hlekk í því að tryggja öryggi þessa viðkvæma hóps. Kjarna þessa má finna í orðum félagsráðgjafa sem sagði í bréfi til mín að hennar skjólstæðingur fengi í Skjólinu „allan alhliða stuðning s.s. varðandi líkamlega umhirðu, andlegan stuðning í formi samtala og hvatningar en ekki síst leiðbeiningar við að finna út úr réttindamálum og aðstoð við að hafa samskipti við aðrar stofnanir. Í mínu starfi hefur starfsemi Skjólsins spilað lykilhlutverk við að koma málum skjólstæðings míns í réttan farveg í átt að betri líðan.“ Sjálf get ég sagt að hér hjá okkur í Skjólinu hef ég fundið að konurnar upplifa öryggi; að það hafi, eins og þær orða það, „bjargað lífinu“ að geta komið í Skjólið. Höfundur er umsjónarkona Skjólsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálparstarf Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar