Hvoru megin ætlar þú að sitja? Valdimar Víðisson skrifar 26. febrúar 2026 08:02 Það fyrsta sem ég heyrði þegar ég mætti á leik FH og Hauka á dögunum var hvoru megin ég ætlaði að sitja. Spurningin kom aftur og aftur, sögð með brosi, stundum með smá kímni en alltaf með sömu undirliggjandi merkingu, nú þarf að velja. Ég skil þessa tilfinningu. Íþróttir snúast um ástríðu. Þær kveikja með okkur samkennd, stolt, spennu, stundum pirring en umfram allt gleði og ánægju. En íþróttir eru líka eitthvað svo miklu stærra en leikurinn sjálfur. Þær eru eitt sterkasta aflið í uppeldi og félagsmótun. Í íþróttum lærir fólk að mæta á réttum tíma, standa með liðinu sínu, taka ábyrgð, vinna með öðrum, takast á við mótlæti og halda áfram. Fyrir börn og ungmenni getur þetta verið lykillinn að sjálfstrausti. Fyrir fullorðna snúast íþróttir fyrst og fremst um heilsu og samfélag, það að tilheyra. Fyrir Hafnarfjörð í heild eru íþróttir og tómstundir eitt af því sem bindur okkur saman, hafnfirska hjartað slær hraðar og við erum að rifna úr stolti yfir okkar frábæra íþróttafólki. Hér í bæ er eru fjölmörg íþróttafélög. Jafn fjölbreytt og þau eru mörg. Það er eitthvað við það að sjá ólíkar greinar blómstra hlið við hlið sem segir manni að samfélagið sé heilbrigt. Sumir finna sig á bretti, aðrir í sal, með bolta, með spaða í hönd, í golfi, í sundi, í dansi, á braut, á hesti eða við markið og svona mætti lengi telja. Allt skiptir þetta máli, ekki bara fyrir þá sem keppa heldur líka fyrir foreldra, sjálfboðaliða, þjálfara og alla þá sem mæta og skapa stemningu. Bæjarstjóri allra, í öllum félögum Ég er bæjarstjóri allra Hafnfirðinga, í öllum félögum. Félögin eru ólík, saga þeirra ólík og þarfirnar oft mismunandi en virðingin og stuðningurinn á að vera jafnskýr. Það sem hefur verið leiðarljós mitt í starfi er að mæta fólki og hópum af sanngirni, vera lausnamiðaður og halda alltaf fókus á því sem skiptir mestu en það eru börnin okkar, ungmennin, fjölskyldurnar og samfélagið sem við erum að rækta til framtíðar. Þegar við styrkjum íþrótta- og tómstundastarf þá fjárfestum við í fólki, forvörnum, heilsu, lífsgæðum og samheldni. Þess vegna er svarið við spurningunni, hvoru megin ég ætli að sitja, í raun einfalt. Ég styð hafnfirsk félög alla leið. Ég vill að öll félögin standi sig vel hvort sem það eru þau sem eru á stóra sviðinu eða þau sem vinna sín afrek fyrir framan færri áhorfendur og á minna sviði. Hafnarfjörður er íþróttabær, við höfum eflt það síðustu ár og ætlum að halda því áfram næstu árin. Það er metnaður sem ég stend með vegna þess að þegar íþrótta- og tómstundalífið dafnar þá dafnar Hafnarfjörður. Höfundur er bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar