Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 13:20 Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur hjá greiningu Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink Það eru mikil vonbrigði að verðbólga hafi ekki lækkað í febrúar og viðbúið að stýrivextir haldist óbreyttir við næstu vaxtaákvörðun að sögn hagfræðings. Ekki sé ólíklegt að möguleg vaxtahækkun komi til umræðu fyrir næstu vaxtaákvörðun, og ef ekki takist að ná verðbólgu nær markmiði gæti virkjun forsenduákvæðis kjarasamninga verið í húfi í haust. Þá sé áhyggjuefni að verðbólguþrýstingur virðist vera á uppleið.
Verðbólga mældist 5,2 prósent í febrúar og stendur þannig í stað á milli mánaða. Greiningardeildir höfðu spáð því að verðbólga myndi hjaðna og fara undir fimm prósent, en svo varð ekki, sem eru vonbrigði að sögn Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðings hjá greiningu Íslandsbanka. Eitt og annað komi á óvart í nýjustu verðbólgumælingunni. Matvöruverð og flugfargjöld hækka og vaxtahækkun mögulega til umræðu „Matvöruverð er til dæmis að hækka nokkuð og hækkaði líka í síðasta mánuði. Flugverð er að hækka meira en venjan er í febrúar. En svona í heildina litið þá eru þessar verðhækkanir nokkuð dreifðar, sem er alveg talsvert áhyggjuefni þar sem það þýðir að verðbólguþrýstingurinn er að aukast og við sjáum það í þessum tölum,” segir Bergþóra. Þróun verðbólgu síðustu mánuði gefi ekki góð fyrirheit fyrir næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans hvað varðar væntingar um vaxtalækkun. „Þetta er síðasta verðbólgumæling áður en peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman um miðjan mars, þannig að hún mun hafa þessa mælingu til hliðsjónar. Og ég held við getum alveg sagt svona nánast með vissu að nefndin er ekki að fara að lækka vexti. Hún er líklega að fara að halda þeim óbreyttum og mögulega ræða vaxtahækkun á fundinum,“ segir Bergþóra. Þrálát verðbólga áhyggjuefni Það sé líka ákveðið áhyggjuefni hve þrálát verðbólgan sé í ljósi þess að forsenduákvæði í kjarasamningum gæti virkjast í september ef verðbólga mælist yfir 4,7% í verðbólgumælingu í ágúst. „En auðvitað er tími til stefnu, að verðbólgan hjaðni, og við höldum áfram að gera ráð fyrir hjöðnun verðbólgunnar að einhverju marki núna næstu mánuði. En þessar síðustu tvær, þrjár mælingar hafa verið vonbrigði og verðbólga virðist ætla að vera ansi þrálát og ekki nálægt verðbólgumarkmiði Seðlabankans og hún hefur verið yfir þessu verðbólgumarkmiði ansi lengi, þannig að það þarf að fara að gera eitthvað í þessu,“ segir Bergþóra.Breytingar á opinberum gjöldum um áramót höfðu meiri áhrif í síðustu mælingu en á mælinguna í febrúar að sögn Bergþóru. „Þau hafa í rauninni fjarað út. Það sem reyndar hjálpaði örlítið til í mælingunni var að eldsneytisverð lækkaði enn frekar nú í febrúar og Hagstofan segir að það hafi verið vegna þess að mælingin var röng í janúar, lækkunin var enn meiri heldur en þau gerðu ráð fyrir í janúar. Þannig það hjálpaði til í þessari mælingu í febrúar. En annars hafa þessar hækkanir svolítið fjarað út. Við sáum reyndar að sorphirðugjöldin voru að hækka og fráveitugjöldin og svo framvegis, sem gerist jafnan í febrúar og spár gerðu ráð fyrir, þannig það kom okkur ekki á óvart.“ Erfið vegferð Er eitthvað augljóst í stöðunni sem þú sérð að stjórnvöld gætu horft til á næstu mánuðum til að sporna við því að þessi þróun haldi áfram á næstu mánuðum? „Það er góð spurning. Kannski bara að stjórnvöld og Seðlabankinn fari að vinna saman í að koma verðbólgu í markmið og ég vona að þau séu bara að gera það. Við verðum bara að treysta Seðlabankanum í þessari vegferð. Þetta er svolítið erfið vegferð hjá þeim, að ná verðbólgunni í markmið, en vonandi að það takist sem fyrst,“ segir Bergþóra.
Efnahagsmál Fjármál heimilisins Íslandsbanki Seðlabankinn Rekstur hins opinbera Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Sjá meira