Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Valur Páll Eiríksson skrifar 27. febrúar 2026 11:01 Gunnlaugur Árni er kominn með umboðsmann. Scottie Scheffler er á mála hjá sömu umboðsskrifstofu. Getty Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson skrifaði nýlega undir samning við eina stærstu umboðsskrifstofu heims. Gunnlaugur var sérlega eftirsóttur af umboðsmönnum um heim allan.
Greint er frá því á golf.is að Gunnlaugur hafi skrifað undir hjá Hambric Sports, sem er á meðal stærri umboðsskrifstofa heims. Á mála hjá Hambric er til að mynda Scottie Scheffler, besti kylfingur heims, ásamt Brooks Koepka og Dustin Johnson og fleiri. Phil Mickelson var þá með samning við Hambric í þrjá áratugi og stofan verið með 23 sigurvegara risamóta á sínum snærum í þau 46 ár sem hún hefur verið starfrækt. Daninn Mark Haastrup er nýr umboðsmaður Gunnlaugs Árna en hann lék í nokkur ár á Evrópumótaröðinni. Gunnlaugur hefur mikla athygli vakið með góðum árangri í háskólagolfi og áhugamannagolfi vestanhafs en hann er á skólastyrk í Louisiana State. Hann var valinn kylfingur ársins af Golfsambandinu í lok síðasta árs. „Ég er mjög ánægður að vera búinn að taka þessa ákvörðun eftir langt ferli þar sem margar umboðsskrifstofur sýndu mikinn áhuga og ég átti í samskiptum við marga aðila. Mér líst mjög vel á þessa niðurstöðu og ég hef góða tilfinningu fyrir Mark og Hambric Sports enda mikil reynsla að baki. Ég er sannfærður um að ég muni fá góðan stuðning og ég er spenntur fyrir næstu árum með þeim,“ er haft eftir Gunnlaugi um tíðindin. Næsta mót Gunnlaugs Árna fer fram á Sawgrass CC í Flórída 7.-9. mars
Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Íslenski boltinn Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Stútfullur laugardagur Sport Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Fleiri fréttir Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Tekur við sem fyrirliði í ljósi handtöku Tiger Woods DeChambeau drullufúll með aðstæður á LIV mótinu Sigurður fór hringinn á tíu höggum undir pari LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Hulda Clara fer frábærlega af stað í atvinnumennskunni Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Heiða Rakel vann háskólamót Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Strangar reglur í kringum græna Masters-jakkann „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ McIlroy varði Masters-titilinn Mastersvaktin: Hver mun klæðast græna jakkanum? Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Fór aftur holu í höggi á Masters og fær kristalsskál Sögulegt forskot McIlroy að gufa upp Skutlað í skólann og svo einkaþota á Augusta Magnaður McIlroy með stærsta forskot sögunnar Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Goðsagnir lögðu Tiger línurnar: „Hann á ekki að keyra“ Símabannið bitnaði illa á goðsögn Rose gerði rándýr mistök en Scheffler stóð sig stöðugt Titilvörnin hefst mjög vel hjá McIlroy en DeChambeau í basli „Hákarlinn“ enn kæstur þrjátíu árum eftir frægt klúður Hröðustu flatir sem til eru Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Dagskráin í dag: Fyrsti dagur Masters, úrslitakeppni í körfu og Evrópuboltanum Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Sjá meira