Körfubolti

„Þetta er karfa tíma­bilsins“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Lautier er hér í leik með Njarðvík gegn Val en hann skipti á Hlíðarenda í sumar.
Lautier er hér í leik með Njarðvík gegn Val en hann skipti á Hlíðarenda í sumar. Vísir/Hulda Margrét

Flottustu tilþrif annarrar umferðar Bónus-deildar karla í körfubolta voru ekki af verri gerðinni frekar en fyrri daginn. Jamir Chaplin, leikmaður Keflavíkur, var áberandi með þrjú af topp tíu en karfa Dwayne Lautier fyrir Val stendur upp úr.

Kaleb Higgins úr Sindra, Bragi Guðmundsson úr Keflavík, Makye Richard úr Njarðvík og Hilmar Smári Henningsson úr Stjörnunni komust einnig á lista en Chaplin fór mikinn með þrjú tilþrif og þá var karfan sem Lautier skoraði gegn Grindavík hreint með ólíkindum.

Þáttastjórnandinn Stefán Árni Pálsson, titlaður Stefán Páll Árnason, átti þá eftir að biðjast afsökunar á illa skrifuðum spurningum og það komst í 10. sæti listans.

Flottustu tíu tilþrif vikunnar má sjá í spilaranum.

Klippa: Tilþrif 2. umferðar: Karfa tímabilsins



Fleiri fréttir

Sjá meira


×