Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. febrúar 2026 17:31 Einar Örn Ólafsson mætir á fund kröfuhafa Play á Hilton Nordica nokkrum dögum eftir að félagið var úrskurðað gjaldþrota. vísir/Anton Brink Heildarkröfur í þrotabú flugfélagsins Play sem varð gjaldþrota í september nema um 21 milljarði króna. Ólíklegt er að nokkuð fáist upp í almennar kröfur í búið en meðal þeirra er sekt frá Umhverfisstofnun upp á 2,2 milljarða króna. Skiptastjóri segir að skipti Play muni taka nokkur ár enda ljóst að einhverjir angar skiptanna munu rata til dómstóla.
Fyrsti skiptafundur þrotabúsins var haldinn á Hilton Reykjavík Nordica-hótelinu í dag. Arnar Þór Stefánsson skiptastjóri segir um tuttugu til þrjátíu manns hafa mætt, flesta lögmenn, sem gæti hagsmuna kröfuhafa í búinu. Langstærsti hluti krafnanna, sem nemi í heild 21 milljarði króna, sé almennar kröfur sem ólíklegt sé að nokkuð fáist upp í. Launakröfur starfsfólks nema um 1,1 milljarði króna og voru samþykktar á skiptafundinum í dag. Arnar Þór segir að frá því muni dragast laun sem fólk hafi þegið í öðrum störfum sem það hóf á uppsagnarfresti hjá flugfélaginu. Mismunurinn á því sé sú upphæð sem heyri til forgangskrafna í þrotabúið. Einar Örn Ólafsson fyrrverandi forstjóri Play ræðir við starfsfólk á skrifstofu flugfélagsins á Suðurlandsbraut.Vísir/Anton Brink Leigusali Play á skrifstofu félagsins á Suðurlandsbraut var á meðal kröfuhafa vegna þess tíma sem tók að rýma skrifstofurnar en það kom í hlut skiptastjóra. Kröfunni var hafnað af lögfræðilegum ástæðum að sögn Arnars Þórs. Þá gera skuldabréfaeigendur sem lögðu til 2,8 milljarða króna kröfur í þrotabúið. Arnar Þór segir að hluta krafnanna hafi verið hafnað og aðrar samþykktar. Meðal annars er um að ræða veð í maltnesku félagi sem stofnað var í tengslum við Play en líka kröfur í vörumerkið, bókunarvél og ETS-einingar. Airport Associates gera kröfur vegna veðs í varahlutum sem eru verðmætir í flugvélaheiminum. Arnar Þór segir það hafa verið sameiginlega hagsmuni að koma þeim hlutum í verð. Kröfu Airport Associates hafi verið hafnað en fyrirtækið geri athugasemd við þá niðurstöðu sem tekist verður á um. Meðal ástæðna þess að Play fór skyndilega í þrot í september var meðal annars frestur sem flugfélagið hafði til að afla sér ETS-eininga vegna kolefnislosunar. Sá frestur átti að renna út 1. október en félagið féll áður en til þess kom. Umhverfis- og orkustofnun lagði 2,3 milljarða króna sekt á Play sem gerð er krafa um í þrotabúið. Sektin er mun hærri en virði ETS-eininganna. Krafan er almenn og því ólíklegt að nokkuð fáist vegna hennar. Arnar Þór segir eitthvað um eignir í þrotabúinu. Helst er um að ræða tryggingar sem félagið hafði greitt á erlendum flugvöllum og fengust endurgreiddar. Einnig var handveðsettur reikningur hjá Arion banka sem átti að mæta ábyrgðum sem voru í búinu og voru ekki sóttar. Sá mismunur rennur til búsins. Þá var innbú og lausafé selt fyrir um 26 milljónir króna. Þá segir Arnar Þór að rýnt verði í aðgerðir hjá flugfélaginu í aðdraganda gjaldþrotsins. Meðal annars hvert 2,8 milljarðar króna sem komu inn í félagið í lok ágúst runnu og hvort gætt hafi verið jafnræðis við það. Þar gæti reynst tilefni til að rifta einhverju samkomulagi. Einnig eru tvö mál á borði Samkeppniseftirlitsins sem snúa að ummælum flugstjóra Icelandair annars vegar og hins vegar kvörtun vegna farmiðakaupa hins opinbera af Icelandair. Jón Þór Þorvaldsson, flugstjóri hjá Icelandair og formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, spáði endalokum Play í viðtali í Bítinu á Bylgjunni þann 2. september. Icelandair er í markaðsráðandi stöðu og segir Arnar Þór að miðasala hjá Play hafi hrunið eftir ummælin. Þá segir Arnar Þór Play hafa orðið fyrir tjóni vegna þess að opinberir starfsmenn, sem nema tugum þúsunda, hafi ferðast með Icelandair til að þiggja vildarpunkta og fá fríðindastyrki. Þar geti verið um misnotkun að ræða sem þrotabúið hafi til skoðunar. Héraðsdómur féllst á dögunum á kröfu Birtu lífeyrissjóðs að Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður, sem skipuð var skiptastjóri Play ásamt Arnari, yrði gert að víkja vegna þess að eiginmaður hennar er eigandi á sömu lögmannsstofu og lögmaður Play. Úrskurðurinn var kærður til Landsréttar sem hefur málið til meðferðar. Arnar Þór segir að Unnur Lilja muni snúa aftur til starfa felli Landsréttur úrskurðinn úr gildi. Gjaldþrot Play er mun minna en hjá WOW air en heildarkröfur í bú flugfélagsins WOW air voru 151 milljarður króna, eða sjöfaldar því sem nú er hjá Play. Er það til marks um muninn á umsvifum flugfélaganna á þeim tíma sem flugfélögin fóru í þrot. Skiptum á búi WOW air er enn ekki lokið sex árum eftir gjaldþrot og segir Arnar Þór ljóst að það muni taka nokkur ár að gera upp þrotabú Play.
Play Gjaldþrot Play Mest lesið Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Viðskipti innlent Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Viðskipti innlent Gugga fer í fyrirtækjarekstur Viðskipti innlent Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Viðskipti erlent Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Viðskipti innlent Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Viðskipti innlent Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Viðskipti innlent Slangur, menning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli kynslóða Atvinnulíf Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Samstarf Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert „Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Sjá meira