Að standa af sér storminn Gerður Björk Sveinsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 19:31 Umræðan um sjókvíaeldi hefur verið þung og á köflum hörð. Hér fyrir vestan finnum við það vel. Margir íbúar hafa lýst því yfir að þeir upplifi umræðuna ekki aðeins sem gagnrýni á atvinnugrein heldur sem gagnrýni á samfélagið sjálft og fólkið sem hér býr og starfar. Það er ekki einfalt að vera í þeirri stöðu að finna fyrir vantrausti og efa gagnvart heilu byggðarlögunum. Fólk sem hér býr og vinnur störf sín af heilindum á ekki að þurfa að upplifa það að biðjast afsökunar á sínu samfélagi. Samkvæmt nýrri könnun Gallup vill stór hluti landsmanna banna sjókvíaeldi. Sú staða kemur ekki á óvart í ljósi þess hversu einhliða umræðan hefur verið. Það er eðlilegt að fólk myndi sér skoðun á grundvelli þess sem það heyrir og les. En þegar umræðan verður mjög einsleit getur heildarmyndin tapast og staðreyndir fá minna rými en þær eiga skilið. Ef við ætlum að taka upplýstar ákvarðanir um framtíð heilla byggðarlaga og atvinnugreina verðum við að tryggja að réttar og vandaðar upplýsingar fái að heyrast, ekki síður en gagnrýnin. Í alþjóðlegri rannsókn sem kynnt var fyrir nokkru kom fram að andstaða við sjókvíaeldi væri mest á Íslandi, en á sama tíma töldu íslenskir þátttakendur sig hafa minni þekkingu á greininni en þátttakendur í öðrum löndum. Sú niðurstaða bendir til þess að við þurfum meiri fræðslu, aukið gagnsæi og opnari umræðu. Það er fullkomlega eðlilegt að spurt sé um umhverfisáhrif. Við sem hér búum lifum í nánum tengslum við náttúruna og viljum verja hana. En við vitum líka að atvinnulíf og umhverfisvernd þurfa ekki að vera andstæður. Þess vegna þarf skýran ramma, virkt eftirlit og gagnsæi. Nú liggur fyrir frumvarp um lagareldi sem ætlað er að styrkja og skýra umgjörð greinarinnar. Það er gríðarlega mikilvægt að Alþingi ljúki þeirri vinnu af festu og ábyrgð. Atvinnugrein sem er orðin stór hluti af byggðaþróun og verðmætasköpun landsins þarf traustan lagaramma, líkt og aðrar atvinnugreinar. Umræðan er nauðsynleg, en hún þarf að byggja á réttum upplýsingum og virðingu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vesturbyggð Fiskeldi Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar