Dramatík hjá gömlu konunni í Rómarborg Valur Páll Eiríksson skrifar 1. mars 2026 21:45 Gatti tryggði gömlu konunni stig á ögurstundu. Paolo Bruno/Getty Images Roma og Juventus skildu jöfn 3-3 í sex marka leik í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Juventus jafnaði undir lokin og forðaðist þriðja tap liðsins í röð.
Bæði lið eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti en Juventus þurfti meira á sigri að halda í kvöld eftir tvö töp í röð í aðdragandanum. Það var þeim því áfall þegar Brassinn Wesley kom Roma yfir og staðan 1-0 í hálfleik. Chico Conceicao jafnaði fyrir Juventus strax í byrjun síðari hálfleiks en fílbeinski varnarmaðurinn Evan N‘Dicka endurnýjaði forskot Roma nokkrum mínútum síðar. Hollendingurinn Donyell Malen, sem kom til Roma frá Aston Villa í janúar, hefur verið stórkostlegur á Ítalíu og skoraði sitt sjötta mark í sjöunda leiknum fyrir höfuðborgarana. Jeremie Boga minnkaði muninn fyrir Juventus á 78. mínútu og í uppbótartíma jafnaði varnarmaðurinn Federico Gatti leikinn og 3-3 jafntefli niðurstaðan. Roma er með 51 stig í fjórða sæti, neðsta Meistaradeildarsætinu, tveimur stigum frá Napoli í þriðja sætinu. Como er í fimmta sæti með 48 stig en Juventus er með 47 stig í sjötta sæti.
Ítalski boltinn Mest lesið Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Norsku treyjurnar uppseldar Sjá meira