Þar sem er reykur, þar er eldur Helgi Áss Grétarsson skrifar 2. mars 2026 10:53 Trúverðugleiki skoðanakannana frá Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn hlýtur að hafa beðið hnekki. Hvers vegna? Í frétt á visir.is, birt 2. desember 2025, var fjallað um skoðanakönnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn, sjá visir.is_2. desember 2025. Samkvæmt fréttinni var könnunin gerð dagana 20.-26. nóvember 2025 og að svarendur hafi samtals verið 1034. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru þær að Sjálfstæðisflokkurinn væri með 31% fylgi og Samfylkingin með 25,5% fylgi. Skoðanakönnun Maskínu birt 27. febrúar 2026 Föstudaginn 27. febrúar síðastliðinn fjölluðu fjölmiðlar um niðurstöður skoðanakönnunar um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn sem Maskína sinnti dagana 1.-27. febrúar 2026 og þar sem 1015 svarendur tóku afstöðu. Þótt margt sé skrýtið við umfjöllun fjölmiðla síðastliðinn föstudag, til dæmis að ekkert sé gert úr því að fylgi Sjálfstæðisflokksins hafi fallið úr meintum rúmum 30% niður í 22,7%, þá er það ekki rannsóknarefni þessarar greinar. Rannsóknarefnið er heldur hitt, að í umfjöllun fjölmiðla, m.a. á visir.is, visir.is_27. febrúar 2026, má sjá greiningu Maskínu á fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn aftur í tímann. Samkvæmt þeirri greiningu var fylgi Sjálfstæðisflokksins 25,2% í nóvember 2025. Sú greining leiðir einnig í ljós að fylgi þess flokks frá september 2025 til og með febrúar 2026, hafi verið hæst 25,4% í október og lægst 22,7% í febrúar 2026. Þessar fylgistölur eru í órafjarlægð frá þeim tölum sem settar voru fram í áðurnefndri frétt visir.is hinn 2. desember 2025. Hvaða ályktun er rökrétt að draga? Af fyrirliggjandi gögnum get ég ekki dregið aðra ályktun en að full ástæða sé að taka skoðanakönnunum frá Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn með töluverðum fyrirvara. Það sama á við, eftir atvikum, um fréttaflutning af slíkum skoðanakönnunum. Þar sem er reykur, þar er eldur. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Trúverðugleiki skoðanakannana frá Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn hlýtur að hafa beðið hnekki. Hvers vegna? Í frétt á visir.is, birt 2. desember 2025, var fjallað um skoðanakönnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn, sjá visir.is_2. desember 2025. Samkvæmt fréttinni var könnunin gerð dagana 20.-26. nóvember 2025 og að svarendur hafi samtals verið 1034. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru þær að Sjálfstæðisflokkurinn væri með 31% fylgi og Samfylkingin með 25,5% fylgi. Skoðanakönnun Maskínu birt 27. febrúar 2026 Föstudaginn 27. febrúar síðastliðinn fjölluðu fjölmiðlar um niðurstöður skoðanakönnunar um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn sem Maskína sinnti dagana 1.-27. febrúar 2026 og þar sem 1015 svarendur tóku afstöðu. Þótt margt sé skrýtið við umfjöllun fjölmiðla síðastliðinn föstudag, til dæmis að ekkert sé gert úr því að fylgi Sjálfstæðisflokksins hafi fallið úr meintum rúmum 30% niður í 22,7%, þá er það ekki rannsóknarefni þessarar greinar. Rannsóknarefnið er heldur hitt, að í umfjöllun fjölmiðla, m.a. á visir.is, visir.is_27. febrúar 2026, má sjá greiningu Maskínu á fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn aftur í tímann. Samkvæmt þeirri greiningu var fylgi Sjálfstæðisflokksins 25,2% í nóvember 2025. Sú greining leiðir einnig í ljós að fylgi þess flokks frá september 2025 til og með febrúar 2026, hafi verið hæst 25,4% í október og lægst 22,7% í febrúar 2026. Þessar fylgistölur eru í órafjarlægð frá þeim tölum sem settar voru fram í áðurnefndri frétt visir.is hinn 2. desember 2025. Hvaða ályktun er rökrétt að draga? Af fyrirliggjandi gögnum get ég ekki dregið aðra ályktun en að full ástæða sé að taka skoðanakönnunum frá Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn með töluverðum fyrirvara. Það sama á við, eftir atvikum, um fréttaflutning af slíkum skoðanakönnunum. Þar sem er reykur, þar er eldur. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar