Á rannsókn á Flateyri að bíða? Sóley Eiríksdóttir skrifar 4. mars 2026 11:01 Snjóflóðið sem féll á Flateyri árið 1995 hefur aldrei verið tekið til sjálfstæðrar og heildstæðrar rannsóknar. Ég lifði sjálf af flóðið og missti systur mína í því. Þann 5. janúar sendi ég Alþingi formlegt erindi þar sem ég óska eftir slíkri rannsókn. Málið var sent til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Í erindinu óska ég eftir sjálfstæðri rannsókn sem gæti svarað lykilspurningum um hættumat, ákvarðanatöku og meðferð upplýsinga í aðdraganda snjóflóðsins. Slík rannsókn gæti meðal annars svarað spurningum eins og: Hvernig var snjóflóðahætta á Flateyri metin fyrir árið 1995 og hvernig voru hættusvæði skilgreind? Af hverju voru ákveðnar flóðleiðir ekki teknar með í útreikninga á hættu? Hvers vegna var hættumat á Flateyri ekki endurmetið eftir snjóflóðið sama ár? Hvernig var staðbundin þekking heimamanna nýtt í hættumati og ákvarðanatöku? Voru veikleikar í stjórnsýslu eða upplýsingaflæði sem höfðu áhrif á mat á hættu? Þetta eru spurningar um hættumat, ákvarðanatöku og lærdóm af atburði sem kostaði mannslíf. Málið hefur þegar verið til umræðu opinberlega. Í umfjöllun Morgunblaðsins 20. febrúar er til dæmis haft eftir Vilhjálmi Árnasyni, formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, að nefndin vilji fyrst „klára að ræða þá skýrslu til að læra af öllu því ferli áður en ákveðin verða næstu skref“. Þá bendir hann jafnframt á að ferlið við rannsókn á snjóflóðinu í Súðavík hafi verið langt. Þetta vekur þó ákveðnar spurningar. Ef markmiðið er að draga lærdóm af atburðum ársins 1995, hvers vegna þarf ákvörðun um rannsókn á Flateyri að bíða? Skipun rannsóknarnefndar er sjálf upphaf að ferli sem tekur tíma. Í sömu umfjöllun er jafnframt vísað til nýrra almannavarnalaga sem nú eru til meðferðar á Alþingi. Það vekur þó spurningu hvernig lagasetning sem nú er til umræðu tengist ákvörðun um rannsókn á atburði sem átti sér stað fyrir þrjátíu árum. Í rannsóknarskýrslunni um snjóflóðið í Súðavík kemur jafnframt fram að rannsóknin hafi orðið erfiðari vegna þess hversu langur tími var liðinn frá atburðunum. Minni fólks dofnar með tímanum og sumir þeirra sem hefðu getað varpað ljósi á atburðarásina eru ekki lengur á lífi. Tíminn vinnur gegn rannsóknum sem þessum. Þess vegna vaknar einföld spurning: Á rannsókn á Flateyri að bíða? Höfundur er aðstandandi og eftirlifandi snjóflóðsins á Flateyri 1995. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Snjóflóðin á Flateyri 1995 Ísafjarðarbær Snjóflóð á Íslandi Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar