Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2026 11:03 Elín Klara Þorkelsdóttir og Dana Björg Guðmundsdóttir fagna einu marka íslenska liðsins í sigrinum á Svartfjallalandi í gær. Vísir/Hulda Margrét Elín Klara Þorkelsdóttir átti stórkostlegan leik í gærkvöldi þegar íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann lífsnauðsynlegan en um leið óvæntan sigur á stórliði Svartfjallalands í undankeppni EM 2026.
Íslenska liðið hafði tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í riðlinum og urðu því helst að vinna leikinn á Ásvöllum í gær. Svartfjallaland átti samt að vera fyrir fram sterkasta lið riðilsins og hafði unnið tvo fyrstu leiki sína með sjö og sex mörkum. Íslensku stelpurnar sýndu hvað þær eru öflugar en sigurinn kom í höfn ekki síst fyrir stórbrotinn leik hinnar 21 árs gömlu Elínu Klöru. Elín Klara skoraði tólf mörk úr aðeins sextán skotum í þessum eins marks sigri og níu þeirra komu utan af velli. Hún var með 75 prósent skotnýtingu, gaf þrjár stoðsendingar og fiskaði þrjú víti. HB Statz tók tölfræði í leiknum og samkvæmt einkunnagjöf fékk Elín Klara tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna í gærkvöldi. Elín Klara kom því með beinum hætti að átján mörkum íslenska liðsins í leiknum en Sandra Erlingsdóttir skoraði úr öllum vítunum sem Elín Klara fiskaði. Ekkert mark var líklega mikilvægara en þegar hún kom íslenska liðinu tveimur mörkum yfir á lokamínútunni.
EM kvenna í handbolta 2026 Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Fótbolti „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Langar að taka pásu frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira