Trú trompar ekki lög Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar 5. mars 2026 21:31 Á Íslandi gilda ákveðin lög sem banna tiltekið athæfi. Það má til að mynda ekki beita einstaklinga ofbeldi, stela vörum úr búð eða fremja skemmdarverk á eignum eða byggingum. Ef einstaklingar sem gerast sekir um slíkt myndu bera fyrir sig trúarlega sannfæringu myndi slíkt ekki trompa landslög. Núna í vikunni talaði kaþólska kirkjan um það opinberlega að þau aðstoði fólk við að „bæla niður“ samkynhneigð. Á Íslandi eru bælingarmeðferðir á grundvelli kynhneigðar, kynvitundar og kyntjáningar bannaðar. Að stunda slíkar meðferðir varðar við lög. Þegar forsvarsmaður kaþólsku kirkjunnar talar um opinberlega að kirkjan sé að „aðstoða“ einstaklinga að „breyta um líferni“ með að bæla niður samkynhneigð, þá er hann að játa ólöglegt athæfi, hvort sem er um skipulagða starfsemi eða ekki er að ræða. Það er ekki skylda kaþólsku kirkjunnar á Íslandi að brjóta lög, og heldur ekki iðkun á trú að brjóta lög, sama hversu sterk sannfæring einstaklinga kann að vera. Hinsegin fólk á ekki að þurfa að bæla niður hinseginleika sinn til að þóknast kaþólsku kirkjunni, ekki frekar en það á að leyfa grýtingar á konum sem gerast sekar um framhjáhald, bara vegna þess að það er túlkun einstaklinga á trúarriti. Skýringar talsfólks og velunnara kaþólsku kirkjunnar um að samkynhneigð sé ekki syndug svo lengi sem fólk sé ekki „virkt“ er í besta falli hlægilegur orðhengilsháttur, og lítið annað en illa dulbúnir fordómar sem eiga ekkert erindi í nútímasamfélagi.Bælingarmeðferðir hafa aldrei verið byggðar á vísindalegum, sálfræðilegum eða siðferðislegum grunni. Fólk sem hefur undirgengist slíkar meðferðir bera það með sér alla ævi, og eru líklegri til þess að glíma við fíknivanda, þunglyndi, kvíða, áfallastreituröskun, sjálfskaða og sjálfsvígshugsanir. Það er því rík ástæða fyrir því að slíkt athæfi hefur verið bannað, og er það undarlegt að trúfélag sem kennir sig við skilning og kærleika haldi því fram að það sé iðkun á þeirra trú að blekkja fólk og telja því trú um að kynhneigð þeirra sé á einhvern hátt röng eða syndug. Hvað svo sem fólki finnst um hinsegin fólk þá er það alveg skýrt að ekkert okkar er hafið yfir lög í lýðræðislegu réttarríki – hvort sem það er á grundvelli skoðana eða trúar. Höfundur er kynjafræðingur og sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir Hinsegin Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar