Hið nýja siðfár? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir skrifar 8. mars 2026 14:02 Seint á síðustu öld urðu foreldrar víða um heim, einkum í Bandaríkjunum, helteknir af hugmyndum um sataníska sértrúarsöfnuði. Meðal þess sem kveikti umræðuna var bók sem átti að byggja á minningum stúlku sem sagðist hafa orðið fyrir ofbeldi djöfladýrkenda. Samfélagið stóð frammi fyrir siðfári, útbreiddum ótta sem varð fljótlega mjög ýktur. Upp spruttu samsæriskenningar um að hlutverkaspil á borð við Dreka & dýflissur væru til þess að lokka ungmenni í slíka söfnuði. Þarna slapp önnur jaðarsett menning ekki undan, heldur átti metal tónlist einnig að leiða til slíks. Foreldrum var talin trú um að þessi menning ýti ungmennum í átt að ofbeldisbrotum, jafnvel morðum og sjálfsvígi. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem ný menning var talin spilla æskunni. Um þremur áratugum fyrr átti sér stað samskonar siðfár vegna myndasagna. Geðlæknir slengdi fram þeirri kenningu að myndasögur væru rót alls ills í sálarlífi barna. Foreldrafélög skipulögðu bókabrennur og bandaríska þingið hélt sérstakar yfirheyrslur um áhrif myndasagna á hegðun ungmenna. Þegar uppi var staðið studdu rannsóknir þó ekki þessar áhyggjur. Sjálfsvígstíðni ungmenna jókst ekki með vinsældum hlutverkaspila og ítrekaðar rannsóknir fundu engin tengsl milli hlutverkaspila, myndasagna eða annarrar nördamenningar og ofbeldis, glæpa, þunglyndis, einangrunar eða sjálfsvíga. Sagan minnir okkur á að samfélög eru oft fljót að finna sökudólga þegar áhyggjur vakna um velferð barna. Nýjungar liggja þá gjarnan best við höggi. Hvort sem það eru myndasögur, hlutverkaspil, þungarokk eða samfélagsmiðlar. Það hefur verið magatilfinning margra að versnandi geðheilsu ungmenna megi rekja til aukinnar notkunar á samfélagsmiðlum. Á síðustu árum hafa einnig verið birtar niðurstöður rannsókna, íslenskra sem erlendra, sem hafa stutt við þá tilfinningu. Nú er komin upp önnur hlið á teningnum, sem vert er að taka alvarlega. Grein sem vakti mikla athygli á sviði sálfræðinnar árið 2025, birt í tímariti á vegum Samtaka sálfræðinga í Bandaríkjunum (APA), tekur saman niðurstöður 46 rannsókna um tengsl samfélagsmiðlanotkunar og geðheilsu ungmenna, svo sem kvíða og þunglyndis. Niðurstaðan er skýr: þau gögn sem við höfum í dag styðja ekki fullyrðingar um að samfélagsmiðlar valdi geðrænum vanda ungmenna. Það þýðir ekki að slíkt sé ómögulegt, heldur að gögnin sem til eru sýni ekki skýrt fram á það. Þar er einnig bent á að þær rannsóknir sem styðja fullyrðinguna séu veikar, t.d. að því leyti að þátttakendur svari eins og þau halda að rannsakendur vilja að þau svari. Þegar uppi er staðið, þurfum við að hætta að tala um þetta eins og staðreynd. Samfélagsmiðlanotkun er ekki skýr orsakavaldur versnandi geðheilsu ungmenna. Ljóst er að umræðan um samfélagsmiðlanotkun ungmenna er ekki orðin að sama siðfári og umræðan um myndasögur, hlutverkaspil eða metal tónlist. En það er á ábyrgð okkar allra að tryggja að umræðan haldist yfirveguð. Þar með talið fjölmiðla, stjórnvalda og foreldra. Þá er ekki þar með sagt að samfélagsmiðlar séu alltaf góðir, að þeir hafi engin áhrif eða að ekki séu til dæmi um einstaka vandamál. Við þurfum einfaldlega að stíga varlega til jarðar með fullyrðingar um að samfélagsmiðlanotkun sé orsakavaldur versnandi geðheilsu ungmenna. Gögn styðja þá fullyrðingu einfaldlega ekki. Höfundur er klínískur barnasálfræðingur og varaþingmaður Viðreisnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Samfélagsmiðlar Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar