Evrópusambandssinnar - það er bannað að plata! Birgir Finnson skrifar 8. mars 2026 19:33 Það muna allir eftir fleygum orðum núverandi forsætisráðherra í aðdraganda síðustu kosninga, þegar hún lýsti því yfir að Evrópusambandsumsókn væri ekki á teikniborðinu og bætti svo við að það væri "bannað að plata". Evrópusambandssinnar virðast hinsvegar ekki hafa fengið memóið, því þessa dagana fylla þeir fjölmiðla með blekkingum ýmiskonar og rangfærslum í viðleitni sinni að afla málstaðnum fylgis. Tvær þær langlífustu eru t.d. "Kíkjum í pakkann!" og "Fáum sæti við borðið!" - hvoru tveggja afbakanir á sannleikanum sem spretta þó upp aftur og aftur sama hversu oft þær eru leiðréttar og afhjúpaðar sem draumórar eða hreinar blekkingar.Öllu dýpra er þó sokkið þegar reynt er að telja þeim fjölmörgu sem áhyggjur hafa af hækkandi verðbólgu, himinháum stýrivöxtum, botnfrosnum fasteignamarkaði og síversnandi skuldastöðu heimilanna trú um að með inngöngu í Evrópusambandið leysist öll þessi vandamál og fleiri með upptöku töframeðalsins "evrunnar". Þessi tiltekna blekking, sem virðist vísvitandi gera út á áhyggjur og vonleysi fólks yfir ástandi Íslenska hagkerfisins, birtist t.d. í greininni "Þrír hópar sem myndu hagnast mest á aðild Íslands að Evrópusambandinu" sem Magnús Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, ritaði á Vísi þann 7. mars.Þar er framtíð þeirra sem skulda, sama hvort það eru húsnæðislán eða annað, dregin upp í rósrauðu ljósi þar sem fullyrt er að upptaka evrunnar muni lækka vexti og verðbólgu, keyra greiðslubyrðina niður í gólf og gera öllum kleyft að kaupa sér hús á Spáni eða sumarbústað í Grímsnesi … og því sé fráleitt annað en að drífa sig í Evrópusambandið sem fyrst.Þarna er þó minna en hálfur sannleikurinn sagður, og þetta því í besta falli þekkingarleysi og í versta falli vísvitandi blekking, því staðreyndin er sú að jafnvel þótt Ísland kjósi að ganga í Evrópusambandið þá fylgir upptaka evrunnar nefninlega ekki sjálfkrafa í kjölfarið, hvað þá minni verðbólga og lægri greiðslubyrði.Það gilda sérstök skilyrði - og ströng - um upptöku evrunnar og það er bara alls ekki nóg eitt og sér að óska eftir inngöngu í Evrópusambandið. Til að fá að taka upp evruna þarf ríki að uppfylla hin svonefndu "Maastricht skilyrði", sem þýðir í einföldu máli að eftir að Evrópusambandið hefur samþykkt aðildarumsóknina þá þarf viðkomandi ríki að sanna að það hafi stjórn á hagkerfi sínu áður en það fær leyfi til að taka upp evruna og ganga í evruhagkerfið. Skilyrðin eru mörg og of langt mál að fara ítarlega í þau hér, en ég vil þó minnast á tvö þeirra: annars vegar má verðbólga viðkomandi ríkis ekki vera meira en 1.5 prósentustigi ofar meðalverðbólgu í þeim 3 Evrópusambandsríkjum þar sem verðbólgan er lægst og hins vegar mega vextir af langtímalánum ekki vera meira en 2 prósentustigum ofar meðal-langtímavaxta í þeim 3 Evrópusambandsríkjum þar sem langtímavextir eru lægstir.Með öðrum orðum og miðað við nýjustu tölur: jafnvel þótt ímynduð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu yrði samþykkt strax í dag, þá þyrfti Ísland engu að síður að ná langtímaverðbólgu úr 5.2% og niður fyrir 2.3% og óverðtryggðum langtímavöxtum (t.d. á húsnæðislánum) úr 9.5% og niður fyrir 5.1% - og þetta þyrfi að gera áður en Ísland fengi leyfi til að taka upp evruna. Það sjá allir í hendi sér hversu langan tíma þetta gæti tekið, ekki síst ef með völdin fer ríkisstjórn sem hefur greinilega gefist upp á verkefninu og játað sig sigraða - ríkisstjórn sem hefur týnt sleggjunni, gleymt planinu og lætur í afneitun sinni hagkerfið og afkomu heimilanna reka á reiðanum.Það eru dæmi um að það hafi jafnvel tekið ríki áratugi að ná að uppfylla skilyrðin. T.d. gekk Írland í Evrópusambandið árið 1973 en tók ekki upp evruna fyrr en árið 1999, eða 26 árum síðar. Það tók Grikkland 20 ár, Búlgaríu 19 ár og Spán og Portúgal 13 ár að fá leyfi til að taka upp evruna eftir að þessi ríki gengu í Evrópusambandið; það tók Litháen 11 ár, Króatíu og Lettland 10 ár o.s.frv., því þetta er alls ekki auðvelt og einfalt verkefni. Mörg ríki í sambandinu, t.d. Ungverjaland, Rúmenía, Svíþjóð, Tékkland, Danmörk og Pólland, eru ýmist ekki enn búin að uppfylla skilyrðin eða hafa kosið að taka ekki upp evruna til að missa ekki alla stjórn á hagkerfum sínum.Þannig að til að fá leyfi til að taka upp evruna þá er ekki nóg að sækja um aðild að Evrópusambandinu heldur þarf Ísland fyrst að ná stjórn á langtímaverðbólgu og langtímavöxtum - verkefni sem getur hæglega tekið áratug eða meira. Ekki er fráleitt að segja að þegar Ísland er loks komið á þann stað með hagkerfið að við megum fá að taka upp evruna, þá höfum við einfaldlega ekki lengur þörf fyrir hana.Það er því ekki mikill mannsbragur að því að reyna að blekkja áhyggjufullan og skuldum hlaðinn almenning til að halda að með því einu að kjósa "Já" við Evrópusambandinu þá komi bara sjálfkrafa í kjölfarið evran, minni verðbólga, lægri vextir, lægri greiðslubyrði og sumarhús í Grímsnesinu fyrir alla.Eða eins og forsætisráðherra orðaði það fyrir síðustu kosningar, þegar hún fullyrti að Evrópusambandsumsókn væri ekki á borðinu: "Það er bannað að plata". Höfundur er tölvunarfræðingur og fréttafíkill Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar