Samstarf

Ein heild – sveigjan­legar lausnir í byggingar­iðnaði

Terra Einingar
Fannar Örn Þorbjörnsson er framkvæmdastjóri Terra Eininga & Öryggisgirðinga og situr jafnframt í stjórn Tæki.is
Fannar Örn Þorbjörnsson er framkvæmdastjóri Terra Eininga & Öryggisgirðinga og situr jafnframt í stjórn Tæki.is

Á íslenskum byggingamarkaði skiptir sífellt meira máli að geta brugðist hratt við, haldið kostnaði í skefjum en á sama tíma tryggt gæði og öryggi, sérstaklega þegar forsendur verkefna breytast og tímalínur styttast. Fyrir verktaka, fyrirtæki og stofnanir þýðir þetta að sveigjanleiki og skilvirkni eru orðin afar mikilvægur hluti af jöfnunni.

Þar kemur samspil Terra Eininga, Öryggisgirðinga og Tæki.is að góðum notum. Markmiðið er skýrt, að gera framkvæmdina einfaldari, hraðari og hagkvæmari frá upphafi til enda. Með nýlegum kaupum á Öryggisgirðingum og Tæki.is hefur Terra Einingar styrkt heildina enn frekar og breikkað þjónustuna fyrir byggingaiðnaðinn.

Allt á einum stað: aðstaða, öryggi og tæki sem vinna saman

Terra Einingar bjóða sveigjanlegar lausnir sem hægt er að setja upp hratt og aðlaga að þörfum verkefnisins, hvort sem um er að ræða vinnubúðir, kaffiskúra, salerniseiningar eða húseiningar. Öryggisgirðingar sjá um afmörkun vinnusvæða og aðgangslausnir með hliðum og aðgangsstýringu, þannig að vinnusvæðið verði öruggt og vel skipulagt. Með tilkomu Tæki.is bætist við tækjaleiga og þjónusta sem styður framvinduna og hjálpar til þegar tímamörk þrengjast eða skipulag tekur breytingum.

„Við leggjum áherslu á að verktakar geti fengið þetta allt á einum stað. Við sjáum um aðstöðuna og öryggið á svæðinu, og með Tæki.is bætist við tækjaleiga og þjónusta sem heldur verkefninu á hreyfingu,“ segir Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga, móðurfélags Öryggisgirðinga og Tæki.is. Hann segir félagið leiðandi á íslenskum markaði í húseiningum, geymslulausnum og öryggisgirðingum.

Sveigjanlegar lausnir

Hugsunin er einföld. Þegar verkefnið breytist á ekki að þurfa að fara í stórar og tímafrekar breytingar til að aðlaga aðstöðuna. Og eitt atriði vegur oft þyngst þegar óvissan er mikil og áætlanir taka breytingum. Enginn binditími er á leigu.

„Viðskiptavinir geta annað hvort keypt lausnirnar eða leigt þær í styttri eða lengri tíma. Enginn binditími er á leigu. Við setjum upp aðstöðuna og sækjum hana svo þegar verkefninu er lokið,“ segir Fannar.

Sterkari heild sem heldur utan um verkefnið

Fyrir verktakann skiptir mestu að hafa þetta í einföldu flæði. Aðstaðan á vinnusvæðinu þarf að vera til staðar, hvort sem það eru vinnubúðir, gámar og salerniseiningar, tæki á leigu eða öryggisgirðingar sem halda svæðinu skipulögðu og öruggu. Þegar þjónustan er á einum stað gengur verkið einfaldlega hraðar.

En framkvæmdir snúast ekki bara um uppsetningu. Þær skilja eftir sig töluvert af efni og umbúðum sem þarf að taka til, flokka og koma í réttan farveg. Að sama skapi styrkir það heildina að félögin eru hluti af Terra-samsteypunni, sem byggir á öflugri umhverfisþjónustu með áherslu á söfnun, flokkun, endurnýtingu og ábyrga meðhöndlun úrgangs. Þannig er hægt að styðja verkefnið í heild sinni, frá upphafi til enda.

Þjónusta sem gerir heildina sterkari

Fannar segir að áherslan fram undan snúist um að skerpa enn frekar á því sem skiptir viðskiptavini mestu máli. Að allt haldist í hendur, að boðleiðir séu stuttar og að þjónustan skili sér í stöðugri framvindu, meiri fyrirsjáanleika og betri nýtingu á tíma og fjármagni.

„Við erum með skýra stefnu um að byggja upp enn sterkari heild þar sem verktakinn fær það sem hann þarf á einum stað og fær það hratt. 

Þetta snýst um að gera valið einfaldara, stytta boðleiðir og tryggja fyrirsjáanleika í þjónustunni. 

Þegar verkefni eru í gangi þarf allt að vera skýrt og ekkert má tefja framvinduna,“ segir Fannar.

Hann segir að lykillinn sé að þjónustan sé ekki bara góð, heldur stöðug og markviss. „Við viljum að viðskiptavinurinn finni að það sé alltaf tekið utan um málið, sama hvort það er aðstaða, öryggislausnir eða tækjabúnaður. Þá verður framvindan betri og verktakinn nær að halda betur utan um kostnaðinn.“ 

Sveigjanleikinn er lykilþáttur í áherslum fyrirtækjanna. „Framkvæmdir breytast og þá þurfa lausnirnar að geta breyst með. Við leggjum áherslu á sveigjanleika sem skilar sér í skilvirkni og hagkvæmni, þannig að breytingar verði einfaldari og hraðari en ella. Það er þannig sem við viljum skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavininn.“

Skólaþorpið í Laugardal

Skólaþorpið í Laugardal er nýlegt dæmi um hvernig færanlegar húseiningar geta leyst raunverulegar áskoranir sveitarfélaga á nútímalegan hátt. Þar er að rísa heill skóli úr færanlegum húseiningum þar sem 16 kennslustofur og stjórnunarrými mynda nútímalegt og sveigjanlegt námsumhverfi. Lausnin byggir á timbureiningum frá Terra Einingum og sýnir í verki að einingalausnir geta verið bæði vandaðar og hentugar fyrir krefjandi verkefni í borgarumhverfi.

„Svona verkefni sýna hvað heildarlausnir geta skipt miklu máli þegar tíminn er naumur og þörfin skýr. Við viljum geta afhent rými sem virkar strax og stendur undir kröfum um öryggi og góða aðstöðu,“

Verkefnið undirstrikar jafnframt breiðara vöruframboð Terra Eininga og aukna áherslu á lausnir fyrir sveitarfélög sem vilja sveigjanleika til framtíðar.

Klippa: Skólaþorp verður til með Terra Einingum






Fleiri fréttir

Sjá meira


×