Fær örmögnun fætur? Gunnar Önnu Svanbergsson skrifar 15. mars 2026 09:00 15. mars er alþjóðlegur dagur Long Covid. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) ákveðið að tileinka marsmánuði baráttunni gegn mýtum um Long Covid og skerpa á vitund almennings um þau alvarlegu einkenni sem fylgja þessu ástandi. Næstum öll líffæri og líffærakerfi geta sýnt einkenni, eins og: hjarta, lungu, æðakerfi, taugakerfi og meltingarfæri. Algengustu einkenni eru: þreyta, örmögnunarköst eftir áreiti (PEM), verkir í vöðvum og liðum, öndunarerfiðleikar, höfuðverkur, erfiðleikar við hugsun og einbeitingu (heilaþoka), breytingar á bragðskyni, erfiðleikar við úrvinnslu hljóðáreitis og svefnvandamál. Algengt er að einstaklingar þrói með sér kvíða og þunglyndi, sem afleiðing af því hversu harkalega þetta skellur á þeim og hversu erfitt er að leita hjálpar, ekki síður en að finna hana. Það er erfitt að vera fyrstur og fara ótroðnar slóðir, það krefst hugrekkis og mikillar vinnu. Þannig er því einmitt farið með þennan hóp. Hópur fólks sem hefur þurft að finna upp leikreglurnar og stappa stálinu hvert í annað af öllum þeim veika mætti sem einkennir okkur. Fyrstu árin var enginn til að hringja í, engir sérfræðingar til, engir stuðningshópar, bara þessi hópur örmagna einstaklinga sem flestir börðust við að komast í gegnum daginn. Þetta var svo góð hugmynd, þegar ég lá uppi í rúmi en nú stend ég fyrir framan dós af málningu og finn hvernig ég skrepp saman. Allt í einu er eins og hún sé helmingi stærri en ég, með risavöxnum stöfum, notkunarleiðbeiningar! Ég labba aftur inn í rúm og leggst niður. Fyrir fjórum árum hefði ég grátið í sængina og barist við ekka fram eftir degi, en í dag held ég stranga stundaskrá alla daga og reyni af öllum mætti að líta framtíðina björtum augum. Örmögnun hefur illan þef,enginn innri friður.Ef aðeins tek ég aukaskrefdett ég niður. Það hefur hver sinn stíl á lífsgöngunni, eitt af því sem hefur haldið mér á brautinni er að skrifa um það hvernig mér líður. Einhverra hluta vegna ryðst þetta fram í bundnu máli og mig langar að enda þetta á þeim nótum. Nú er komið næstum nóg,enn ég neita þroti,ekkert það er lekur sjó,er endalaust á floti. Næstum blár ég áfram bið.Bið að öldur lægi,því ég er eins og allir þið,angi af samfélagi. Rennur stund og sést til társ,sitthvað undan lætur.Verður kannski í enda árs,að örmögnun fær fætur. Það er von mín að við getum fylgst að sem samfélag í baráttunni við afleiðingar og eftirköst Covid-vírussins. Staðið þétt saman, verið umburðarlynd og sýnt náungakærleik, þannig að við náum öll í mark, hvert á sinn hátt. Höfundur er sérfræðingur í sjúkraþjálfun og öryrki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar