„Má þetta til sanns vegar færa“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 12. mars 2026 06:32 Hérlendir Evrópusambandssinnar, með forystumenn ríkisstjórnarinnar í broddi fylkingar, hafa í umræðunni að undanförnu þvertekið fyrir það að umsóknarferlið að Evrópusambandinu gangi út á aðlögun að regluverki þess. Einungis væri um einfaldar viðræður að ræða en ekki ferli sem fæli í sér slíka aðlögun. Þvert á gögn sambandsins sjálfs. Til dæmis segir á vefsíðu Evrópusambandsins. „Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“ Hins vegar er ekki nóg að með að þetta komi fram í gögnum Evrópusambandsins og sé í samræmi við reynslu ríkja sem sótt hafa um inngöngu í sambandið heldur kemur þetta beinlínis fram í greinargerðinni með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um fyrirhugað þjóðaratkvæði. „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum,“ segir þannig í greinargerðinni. Ekki þarf því að deila um það frekar. Um er að ræða ferli sem snýst um aðlögun samhliða viðræðunum. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Hérlendir Evrópusambandssinnar, með forystumenn ríkisstjórnarinnar í broddi fylkingar, hafa í umræðunni að undanförnu þvertekið fyrir það að umsóknarferlið að Evrópusambandinu gangi út á aðlögun að regluverki þess. Einungis væri um einfaldar viðræður að ræða en ekki ferli sem fæli í sér slíka aðlögun. Þvert á gögn sambandsins sjálfs. Til dæmis segir á vefsíðu Evrópusambandsins. „Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“ Hins vegar er ekki nóg að með að þetta komi fram í gögnum Evrópusambandsins og sé í samræmi við reynslu ríkja sem sótt hafa um inngöngu í sambandið heldur kemur þetta beinlínis fram í greinargerðinni með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um fyrirhugað þjóðaratkvæði. „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum,“ segir þannig í greinargerðinni. Ekki þarf því að deila um það frekar. Um er að ræða ferli sem snýst um aðlögun samhliða viðræðunum. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar