Meðgönguþoka: hvað er að gerast í heilanum? Þórhildur Halldórsdottir skrifar 19. mars 2026 07:03 Flestir hafa heyrt talað um að vera utan við sig eða upplifa minnisskort og aukna tilfinninganæmni á meðgöngu. Þetta getur til dæmis birst í því að keyra með barnið í vinnuna en ekki í leikskólann, ganga frá mjólkinni upp í skáp í stað ísskápsins, gleyma eigin kennitölu eða fara að hágráta yfir tryggingaauglýsingu í sjónvarpinu. Oft er talað um þetta í hálfkæringi sem „meðgönguþoka“ eða „meðgönguheili“. En nýjustu rannsóknir í taugavísindum benda til þess að á bak við þessa oft skoplegu hegðun leynast stórtækar breytingar í heilanum. Það hefur lengi verið vitað að hormón á borð við estrógen og prógesterón hækka margfalt á meðgöngu. Í sumum tilfellum verður allt að þúsundföld aukning miðað við fyrir óléttuna. Slíkar hormónasveiflur eru meiri en á nokkru öðru tímabili lífsins (unglingsárin meðtalin). Vísindamenn telja að þessar miklu breytingar geti haft víðtæk áhrif á heilann og haft áhrif á tengingar milli heilafrumna og strúktúr heilans.Það er þó tiltölulega stutt síðan að fyrstu rannsóknirnar á mönnum sem sýna þessa miklu breytingar á heilanum á meðan á meðgöngu stendur birtust. Fyrsta segulómunarrannsóknin á þessu sviði birtist ekki fyrr en árið 2017. Síðan þá hefur áhugi vísindamanna á þessu sviði aukist hratt. Nýleg rannsókn sem birtist í Nature Neuroscience veitti einstaka innsýn í þessar breytingar. Þar fylgdist vísindateymi með heila 38 ára konu frá því áður en hún varð ófrísk af sínu fyrsta barni, í gegnum alla meðgönguna og fram að tveimur árum eftir fæðingu. Í heildina var heilinn hennar skannaður 26 sinnum á þessu tímabili. Niðurstöðurnar sýndu að heilinn gengur í gegnum víðtæka endurskipulagningu yfir meðgönguna. Til dæmis minnkaði rúmmál gráa efnisins í mörgum heilabarkarsvæðum. Samhliða því urðu tengingar í hvíta efni heilans sterkari sem bendir til aukinnar samhæfingar milli heilastöðva. Breytingarnar sem áttu sér stað voru m.a. á heilasvæðum sem koma að félagslegri skynjun, tilfinningavinnslu og tengslamyndun. Vísindamenn telja að þetta endurspegli ekki tap á starfsemi heldur frekar fínstillingu. Þetta er svipað og gerist á unglingsárum þegar heilinn sérhæfir sig enn frekar. Þessi fínstilling er talin auka næmni foreldra fyrir svipbrigðum og hljóðum ungbarna og þannig auðveldað tengslamyndun milli foreldris og barns. En hvað gerist svo þegar barnið er fætt? Margar þessara breytinga ganga að einhverju leyti tilbaka á fyrstu mánuðum eftir fæðingu en aðrar virðast vara lengur. Sumar rannsóknir benda til þess að ákveðnar breytingar í heilanum geti verið mælanlegar mörgum árum eftir fæðingu barns. Með öðrum orðum fer heilinn ekki einfaldlega aftur í fyrra horf heldur endurspeglar nýjan lífsfasa og nýja reynslu. Þessar stórtæku breytingar undirstrika hversu sveigjanlegur mannheilinn er. Jafnvel á fullorðinsárum getur hann breyst, aðlagast og endurskipulagt sig til að mæta nýjum verkefnum og áskorunum lífsins. Heilinn er því ekki fastmótaður heldur líffæri sem heldur áfram að læra og þroskast alla ævi. Fyrir þá sem hafa áhuga á að vita meira um breytingar í heilanum hjá konum yfir lífsleiðina og áhrif þeirra á andlega heilsu vil ég vekja athygli á spennandi hádegisfyrirlestri sem fram fer á morgun (20.mars) í Háskólanum í Reykjavík. Donghao Lu, dósent við Karolinska Institutet, sem er leiðandi í rannsóknum á geðheilsu kvenna frá fyrstu tíðablæðingum til tíðahvarfa, mun kynna nýjustu alþjóðlegu rannsóknir á þessu mikilvæga og áhugaverða sviði og svara spurningum. Öll velkomin! Pistillinn er skrifaður í tilefni að Alþjóðlegrar heilaviku sem verður fagnað í Háskólanum í Reykjavík dagana 16.-22. mars. Dagskrá viðburða er að finna á vefsíðu Háskólans í Reykjavík, hr.is. Höfundur er dósent í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og barnasálfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Meðganga Háskólar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar