Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. mars 2026 06:06 Intuens segist geta greint yfir 400 mismunandi sjúkdóma með heilskoðun, sem kostar 300.000 krónur. Getty Fyrirtækið Intuens, sem býður upp á afar umdeildar heilskoðanir, hefur höfðað mál á hendur landlækni eftir að embættið tók í annað sinn þá ákvörðun að heimila ekki myndgreiningarrannsóknir án tilvísunar frá lækni. Þar til niðurstaða liggur fyrir í dómsmálinu veitir Intuens þjónustuna aðeins gegn tilvísun.
Málið á sér nokkuð langa sögu en Intuens kom fyrst til skoðunar hjá landlæknisembættinu árið 2023, eftir að fyrirtækið hóf að bjóða upp á svokallaða heilskimun, segulrannsókn á öllum líkamanum, án þess að krefjast tilvísunar frá lækni. Landlæknir neitaði að heimila rannsóknirnar árið 2024 en sú ákvörðun var kærð til heilbrigðisráðuneytisins, sem komst að þeirri niðurstöðu að annmarkar hefðu verið á ákvörðun embættisins. Málið var þá tekið fyrir á ný en landlæknisembættið komst aftur að sömu niðurstöðu. Intuens höfðaði mál gegn embættinu í kjölfarið, þar sem þess er krafist að ákvörðun þess verði felld úr gildi. Landlæknir fer fram á að kröfu Intuens verði hafnað. Fréttastofa hefur ítrekað óskað eftir upplýsingum um stöðu mála hjá landlæknisembættinu en ekki haft erindi sem erfiði og verið sagt að málið sé í vinnslu. Þegar í ljós kom að Intuens hafði höfðað mál fyrir héraðsdómi vísaði landlæknisembættið á ríkislögmann. Fréttastofa leitaði þangað eftir afritum af gögnum málsins en var hafnað með tilvísan til ákvörðunar landlæknisembættisins þar um. Skimunarþjónusta Intuens hefur sætt harðri gagnrýni af hálfu heilbrigðisstarfsmanna, sem segja meðal annars að um sé að ræða inngrip sem getur bæði valdið skaða og áhyggjum. Líkur séu á að eitthvað finnist sem hefði aldrei valdið viðkomandi vandræðum en krefjist frekari rannsókna og auki þar með álag á heilbrigðiskerfið. Skimanir af því tagi sem Intuens býður upp á hafa verið að ryðja sér rúms víða erlendis en hafa sætt sömu gagnrýni; að rannsóknir á einstaklingum með engin einkenni eigi aðeins að eiga sér stað sem þáttur í lýðgrunduðum skimunum. Hér á landi er skimað fyrir krabbameini í leghálsi, brjóstum og ristli. Intuens hefur einnig höfðað mál gegn Sjúkratryggingum Íslands, þar sem það vill meina að ríkið hafi skapað sér skaðabótaskyldu með því að bjóða ekki út skoðunarþjónustu eins og því bar.
Heilskimanir Heilbrigðismál Krabbamein Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Katla skelfur Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira