Fengu hvorugt varanlegar undanþágur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 14. mars 2026 23:01 Tvö ríki hafa óskað eftir varanlegum undanþágum frá yfirstjórn Evrópusambandsins á sjávarútvegsmálum innan þess. Malta og Noregur. Bæði fengu neitun. Þess í stað fékk Malta einungis sértaka aðlögun, eins og Evrópusambandið kallar hana en hérlendir Evrópusambandssinnar hafa frekar viljað að kalla sérlausn, sem breytti engu um það að valdið fór til sambandsins. Norðmenn fengu tímabundna aðlögun í minna en fjögur ár áður en valdið hefði farið til Evrópusambandsins. Farið var þannig fram á að Noregur myndi áfram stjórna veiðum á norskum hafsvæðum norðan 62. gráðu norðlægrar breiddar og að allar fiskveiðiauðlindir í norsku efnahagslögunni yrðu áfram tryggðar Norðmönnum. Krafan var meðal annars byggð á því að sjávarafurðir væru mikilvæg útflutningsvara fyrir Noreg og að sjávarútvegur skipti afgerandi máli fyrir bæði búsetu og atvinnulíf við strendur landsins auk þess sem Norðmönnum hefði tekizt vel til við stjórnun fiskveiða sinna. Færð voru enn fremur fram þau rök að norðan 62. breiddargráðu deildi Noregur ekki fiskistofnum með Evrópusambandinu. Niðurstaðan varð engu að síður sú, sem fyrr segir, að Norðmenn fengu í engu varanlegar undanþágur. Norskir ráðamenn settu einnig fram ýmsar tillögur um millileiðir, eins og þá að tilteknar ákvarðanir yrðu áfram í norskum höndum, en allt fyrir ekki. Þá skipti engu að ljóst væri að sjávarútvegur myndi hafa úrslitaáhrif á það hvort Noregur gengi í sambandið. Hafnað var enn fremur þeirri kröfu að Noregur færi áfram með samningsvaldið varðandi deilistofna gagnvart Rússlandi. Fyrir vikið er ef til vill ekki að furða að Norðmenn hafi hafnað inngöngu í Evrópusambandið og enn fremur að fleiri hafi verið andvígir því en hlynnir að ganga í sambandið samkvæmt niðurstöðum allra skoðanakannana sem birtar hafa verið í Noregi undanfarin rúm 20 ár þó sjávarútvegur sé alls ekki eina ástæðan fyrir andstöðunni í röðum þeirra við að ganga þar inn. Margoft hefur komið fram í máli forystumanna innan Evrópusambandsins að varanlegar undanþágur frá yfirstjórn þess séu ekki á boðstólum. Það áréttaði einnig Heather Grabbe, sérfræðingur hjá Brugel-hugveitunni í Brussel, í samtali við Ríkisútvarpið 6. marz síðastliðinn. Valdið fer til sambandsins. Fram kemur skýrt í gögnum Evrópusambandsins að hægt sé í undantekningartilfellum að semja um það hvernig og hvenær ríki fara undir yfirstjórn þess. En ekki hvort. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar