Tilfinningar sem okkar hærri leiðbeinendur Matthildur Björnsdóttir skrifar 16. mars 2026 18:02 Ég er nógu gömul til að muna að það var sagt við mig. Að það að sýna öðrum á almannafæri að þú hefðir tilfinningar væri aumingjaháttur. Enginn ætti að láta aðra sjá sig tárast. Að það væru bara leiðinlegar væmiltýtur sem leyfðu sér slíkt. Mér fannst það viðhorf mjög ómannúðlegt og ískalt. Og sem betur fer er það að breytast á landinu. Eitt það fyrsta sem mér var sagt hér í Ástralíu fyrir 38 árum síðan, var að það væri betra, æskilegra og hollara, að létta á, og tjá erfiða lífsreynslu. Þau orð voru auðvitað mikil og ný frelsun, og léttir að heyra, í mínu nýja landi hinum megin á hnettinum. Gæti ástæðan verið þessi? Á þessari stóru Eyju sem er Ástralía. Eyja þar sem er dagsbirta alla vinnudaga daga ársins, og bara fjórir tímar á milli lengsta og stysta dags. Ekki sagt að þegja, bæla og halda inni, eins og hinni Íslensku þjóð hafði verið skipað í langan tíma af mörgum á landi íss og elda, og það í langan tíma. Ég er nýbúin að tala við Íslenskan mann nær sjötugu sem man það líka. Svo er það líka hugsanleg spurning hvort að fámennið og skammdegið hafi skapað þau viðhorf? Hér í Ástralíu er það í fáum orðum svona: Það verður dimmt um fimmleytið þegar sumarið er á Íslandi. En bjart til níu þegar veturinn er á Íslandi. Slíkt hefur auðvitað áhrif inn í hugi, hjörtu og annað í lífi mannvera. Hvernig þau áhrif virki eru hugsanlega þau, að það sé birtan sem setji lífsreynslu kannski í önnur hólf í mannverum, en það sem gerist í löngu skammdegi eins og er á Íslandi og fleiri norrænum löndum. Blöðin á okkar tímum sýna að æ fleiri Íslendingar eru að færa sig í sól yfir veturna. Og sumir hafa hreinlega flutt í burtu og eru líka fegin að vera laus við snjó. Svo að það er eitt og annað sem virkilega hittir í hjartað hér, miðað við hvernig viðhorfin til tilfinningasemi á Íslandi minna tíma voru. Það er að það kemur fram á ótal vegu í tjáskiptum á sjónvarpi sem sýnir allt annað mynstur og viðhorf um „feelings“ tilfinninga hér í Ástralíu en ég vitnaði í fjölmiðlum á Íslandi. Það er svo ljúft að upplifa að rökhyggjan er ekki nærri alltaf í hæsta sæti tilverunnar. En situr auðvitað oft sem góður félagi tilfinninga í sögunum. Hlaðborð af ást sem er upplifuð við að horfa á þættina Píanó Sem mjög svo ljúft dæmi um það, er nýtt efni sem ABC sjónvarpsstöðin fór að hafa í fyrra og hefur titilinn Píanó, sem við nutum í fyrra og nú er ný sería byrjuð í dag sunnudaginn 15.mars. Stjórn ABC sjónvarpsstöðvarinnar fékk þá meiriháttar hugmynd að setja píanó upp á almannafæri í járnbrautar og á öðrum almennings stöðum. Þau höfðu sett út boð á einhvern hátt í gegn um fjölmiðla, til að láta þau sem spiluðu á píanó heima hjá sér vita. Að þau gætu komið á þann stað járnbrautar stöðvar í hverri borg fyrir sig, og spilað tónlist sína fyrir vegfarendur þann dag. Það er meiriháttar unaður að upplifa ástina sem flæddi á staðnum og sjá þann þverskurð af mannverum á öllum aldri frá ótal þjóðernum jarðar, og í allskonar mismunandi líkamlegu ástandi. Píanó leikendur eru allt frá börnum til hundrað ára einstaklinga frá ótal löndum setjast við það og spila. Þau sýna og deila því út til heimsins, þeirra sem ná að sjá þá. Það voru blindir einstaklingar. Ungur maður sem hafði fengið heilablóðfall og það skemmt annan handlegg hans. En hann gafst ekki upp, heldur ákvað að endur þjálfa sig til að geta haldið áfram að nota píanóið og spilar einhentur á það. Einstaklingar sem nota hjólastóla settust við það, og þannig mætti lengi telja dæmi um heilunar leið þess að nota tónlist. Einstaklingarnir segja frá tengingu sinni við píanóið, og tala um hvernig tónlistin frá að spila á píanóið, hefur bætt heilsu þeirra. Sem þau fóru að nota eftir að hafa upplifað sínar litríku áskoranir. Það er svo hjartnæmt að vita og upplifa samtölin, viðbrögðin, og hinar litríku lífsreynslusögur einstaklinganna. Þessir þættir voru líka settir í Bretlandi, og sýndir hér, svo að við höfum notið þess að upplifa tvöfaldan skammt af þeim unaði sem er ríkjandi í öllu andrúmslofti bygginga þá daga sem spilað er. Áströlsku útgáfuna og þá Bresku. Einstaklingarnir eru allra kynslóða og aldurs frá ungum börnum til gamalmenna um hundrað ára gömlum. Ástin er svo uppi í því öllu. Við að horfa á þessa þætti í dag sem voru endurteknir, áður en þeir næstu níu fara af stað á morgum. Það er líka unaðslegt að sjá áhorfendur sem hlustendur dansa og hreyfa sig og litlu börnin elska líka að dilla sér í takt við tónlistina. Börn sem sýna í áhuga og hreyfingum, að þau hugsi sér að spila á píanó þar einn daginn. Þau haga sér alltaf vel þar. Þeir hundar sem sumir hafa með sér haga sér líka fullkomlega vel, engir hundar barka. Það er alger hjartaveisla að njóta og upplifa í hvert skipti sem ég horfi á þá. Höfundur er Íslendingur sem hefur búið til lengri tíma í Ástralíu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Þau sem hafna framförum Birkir Ingibjartsson Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson Skoðun Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun Skoðun Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ef ég C með hattinn, fer ég örugglega í stuð Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Siglunes, já eða nei? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Heimsveldið og hjúkrunarkonan Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Lægri vextir eru STÓRA MÁLIÐ Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Tækni með tilgang Einar Stefánsson skrifar Skoðun Bretland og Norðurslóðir Bryony Mathew skrifar Skoðun Þegar óttinn verður að röksemd Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod skrifar Skoðun Hversu oft má samgöngukerfi bregðast? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður, höfnin, samgöngur og samfélagið Guðmundur Fylkisson skrifar Skoðun Eru huldufólk enn til eða höfum við hætt að sjá það? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Öruggt húsnæði eru mannréttindi - líka í Hafnarfirði Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar Skoðun Hvernig get ég aðstoðað? Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið í fyrsta sæti Daði Pálsson skrifar Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson skrifar Sjá meira
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun
Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar
Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod skrifar
Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar
Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar
Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun