Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. mars 2026 20:57 Mæðgurnar Sóley, Fríða María og Freyja voru ansi lukkulegar með tónleikana, hvern skal undra. Sóley með glæsilega sérhannaða tösku í Laufeyjarþema og kórónuna sem hún fékk í gjöf frá söngkonunni. Vísir/Sigurjón Hin tólf ára gamla Sóley Stella Ásbergsdóttir átti ógleymanlegt augnablik með Laufey í Kórnum um helgina þegar söngkonan gaf henni og sérsaumaðri tösku hennar sérstakan gaum fyrir framan þúsundir tónleikagesta og tileinkaði henni lag. Sóley segist aldrei munu gleyma augnablikinu.
Hún mætti ásamt systur sinni hinni sautján ára gömlu Fríðu Maríu Ásbergsdóttur og móður sinni Freyju Kristinsdóttur í kvöldfréttir Sýnar í kvöld þar sem þær ræddu tónleikana. Tæplega sextán þúsund manns sóttu tónleika með Laufeyju Lín í Kórnum í Kópavogi um liðna helgi. Tónleikarnir voru lokahnykkur A Matter of Time Evróputúrsins. Augnablikið má sjá í fréttinni hér fyrir neðan. Það skal tekið fram að myndefnið sem sýnt er frá í fréttinni um tónleika Laufeyjar frá því um helgina er frá Senu Live/REC Media. Það fórst fyrir að tiltaka það í sjónvarpsfréttinni en er hér með komið á framfæri. Tileinkaði Sóleyju lag „Ég verð að segja að ég bara sónaði út,“ segir Sóley. Móðir hennar bætir því við að þetta hafi verið algjör draumur. Mikil vinna hafi farið í sérsaumuðu töskuna sem á er klukka, vel við hæfi fyrir Laufey. „Ég byrjaði á henni í desember, aðeins í janúar, var mikið að gera hana í febrúar og svo kláraði ég hana í mars.“ Eldri systir hennar Fríða hefur verið aðdáandi Laufeyjar í lengri tíma. Hún er sjálf mjög lunkin söngkona, líkt og sést í kvöldfréttum Sýnar. Hún segir erfitt að bera sig saman við aðra en segir að hún væri mjög til í að geta einn daginn starfað við tónlist, enda í framhaldssnámi í tónlist. „Mér finnst þetta svo spennandi heimur og mér fannst líka svo fallegt í lokin þegar hún var að fara að spila Letter To My 13 Year Old self, og hún byrjaði að tala um hvernig allir geta gert þetta og einhvern veginn að dreyma stórt þó við búum hérna á Íslandi og allt það, því fyrst hún gat gert þetta þá getum við það öll líka og mér fannst það passa svo vel.“
Tónlist Tónleikar á Íslandi Laufey Lín Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira