Samvinna eflir samfélög Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar 17. mars 2026 18:31 Það eru forréttindi að búa í lýðræðissamfélagi þar sem við fáum að nýta okkar kosningarétt, taka afstöðu, koma á framfæri okkar skoðun og að hafa áhrif. Ég veit ekki betur en að þetta sé eitt af því sem allir stjórnmálaflokkar á Íslandi eru sammála um. Það styttist óðfluga í kosningar til sveitarstjórna sem verða þann 16. maí. Víðsvegar um landið sjáum við heilu listana af fólki sem er til þjónustu reiðubúið fyrir fólkið í landinu. Fólk sem vill láta til sín taka, hefur skoðanir á nærsamfélagi sínu og vill taka þátt í kosningabaráttu. Þetta eru þúsundir einstaklinga, sem er fagnaðarefni út af fyrir sig. Áður en ég tók sæti á Alþingi starfaði ég á vettvangi sveitarstjórna, eins og margir aðrir Alþingismenn hafa gert. Við kollegarnir gerðum oft grín að því hvar klefinn væri sem breytti sveitarstjórnarmanni í þingmann því við upplifðum stundum að fyrrverandi sveitarstjórnarfólk hefði alveg skipt um „lið“, væri komið í „ríkisliðið“, og væri að passa að hygla ekki sveitarstjórnarstiginu um of. Stundum með réttu og kannski oftast með röngu. Oft var það bara pólitíkin sem var að flækjast fyrir. Sveitarstjórnarstigið er mikilvægt stjórnsýslustig og er jafn sett ríkinu sem slíkt, ég þreytist ekki að minnast á að hvoru tveggja ber að sína hinu virðingu. Á vettvangi sveitarstjórna vinna fulltrúar að því í sameiningu að efla samfélagið sitt. Sjá til þess að skólastarf sé öflugt og að boðið sé upp á aðstöðu fyrir menningarstarf sem og íþróttir svo sitthvað sé nefnt. Það er ekki síður mikilvægt en að leggja línur að leikreglum samfélagsins. Sveitarstjórnarfulltrúar vinna saman að því að efla sitt samfélag. Þar sem sveitarfélög vinna saman í landshlutasamtökum að því að efla sitt svæði og þar sem sveitarfélög vinna saman á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga að því að tryggja góða þjónustu fyrir alla landsmenn. Það gera þau með formlegu samstarfi og með því að eiga sæti við borðið. Kunnuglegt stef, ekki satt? Höfundur er þingmaður Viðreisnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eiríkur Björn Björgvinsson Viðreisn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Það eru forréttindi að búa í lýðræðissamfélagi þar sem við fáum að nýta okkar kosningarétt, taka afstöðu, koma á framfæri okkar skoðun og að hafa áhrif. Ég veit ekki betur en að þetta sé eitt af því sem allir stjórnmálaflokkar á Íslandi eru sammála um. Það styttist óðfluga í kosningar til sveitarstjórna sem verða þann 16. maí. Víðsvegar um landið sjáum við heilu listana af fólki sem er til þjónustu reiðubúið fyrir fólkið í landinu. Fólk sem vill láta til sín taka, hefur skoðanir á nærsamfélagi sínu og vill taka þátt í kosningabaráttu. Þetta eru þúsundir einstaklinga, sem er fagnaðarefni út af fyrir sig. Áður en ég tók sæti á Alþingi starfaði ég á vettvangi sveitarstjórna, eins og margir aðrir Alþingismenn hafa gert. Við kollegarnir gerðum oft grín að því hvar klefinn væri sem breytti sveitarstjórnarmanni í þingmann því við upplifðum stundum að fyrrverandi sveitarstjórnarfólk hefði alveg skipt um „lið“, væri komið í „ríkisliðið“, og væri að passa að hygla ekki sveitarstjórnarstiginu um of. Stundum með réttu og kannski oftast með röngu. Oft var það bara pólitíkin sem var að flækjast fyrir. Sveitarstjórnarstigið er mikilvægt stjórnsýslustig og er jafn sett ríkinu sem slíkt, ég þreytist ekki að minnast á að hvoru tveggja ber að sína hinu virðingu. Á vettvangi sveitarstjórna vinna fulltrúar að því í sameiningu að efla samfélagið sitt. Sjá til þess að skólastarf sé öflugt og að boðið sé upp á aðstöðu fyrir menningarstarf sem og íþróttir svo sitthvað sé nefnt. Það er ekki síður mikilvægt en að leggja línur að leikreglum samfélagsins. Sveitarstjórnarfulltrúar vinna saman að því að efla sitt samfélag. Þar sem sveitarfélög vinna saman í landshlutasamtökum að því að efla sitt svæði og þar sem sveitarfélög vinna saman á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga að því að tryggja góða þjónustu fyrir alla landsmenn. Það gera þau með formlegu samstarfi og með því að eiga sæti við borðið. Kunnuglegt stef, ekki satt? Höfundur er þingmaður Viðreisnar
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar