Hverjum á ég að trúa um ESB? Ólafur Hauksson skrifar 18. mars 2026 08:30 Svarið liggur í augum uppi. Engum er trúandi sem tjáir sig um kosti eða galla aðildar að ESB. Umræðan er allt of hlutdræg til þess. Með engu móti er hægt að lesa eða hlusta á andstæð sjónarmið til ESB og ætla að taka afstöðu út frá því. Við kjósendur eigum engu að síður rétt á því að fá óvilhallar upplýsingar og svör um allt sem snýr að hugsanlegri aðildarviðræðum og aðild að ESB. Öðru vísi getum við ekki tekið afstöðu til inngöngu. Engin ástæða er til að treysta ríkisstjórninni til að hafa beina umsjón með slíkri upplýsingagjöf. Engin ástæða er til að trúa í blindni öllum þeim fjölda hlutdrægra álitsgjafa sem fjölmiðlar kalla til. Upplýsingaóreiðan hefði völdin og kjósendur engu nær. Blaðamenn geta það Best væri ef ríkisvaldið fengi hóp sjálfstæðra blaðamanna til að sjá um þessa upplýsingamiðlun. Starf blaðamanna felst jú í því að afla upplýsinga, spyrja spurninga, kafa dýpra og bera niðurstöðuna fram með skýrum, skilmerkilegum og heiðarlegum hætti. Blaðamenn hafa menntun, reynslu og þjálfun í slíkum vinnubrögðum. Afrakstur vinnu blaðamanna birtist fyrir opnum tjöldum, þeir geta ekkert falið. Hlutverk þessa blaðamannahóps yrði að tryggja óháðar upplýsingar um hvað tekur við ef kjósendur samþykkja aðildarviðræður. Þær upplýsingar geta komið úr öllum áttum, ekki síst frá þeim sem eru annaðhvort með eða á móti aðild að ESB. Hlutverk blaðamanna yrði að komast til botns í hvað er rétt, hvað orkar tvímælis og hvað á heima í ruslafötunni. Þegar um vafamál eða óvissu væri að ræða þá hefðu blaðamennirnir á sínum herðum að skýra stöðuna og draga fram andstæðar skoðanir – en þó þannig að kjósendur verði ekki skildir eftir með spurningamerki á enninu. Vinna þessa upplýsingahóps þyrfti að vera lifandi á netinu, andstæðir pólar þurfa að geta komið áliti sínu á framfæri og fengið svör sem eru hafin yfir allan vafa. Mikilvægt er síðan að þó hópurinn fengi laun greidd úr ríkissjóði, þá hlíti hann engu valdboði nema eigin samvisku samhentrar ritstjórnar. Höfundur er ráðgjafi í almannatengslum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Hauksson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Svarið liggur í augum uppi. Engum er trúandi sem tjáir sig um kosti eða galla aðildar að ESB. Umræðan er allt of hlutdræg til þess. Með engu móti er hægt að lesa eða hlusta á andstæð sjónarmið til ESB og ætla að taka afstöðu út frá því. Við kjósendur eigum engu að síður rétt á því að fá óvilhallar upplýsingar og svör um allt sem snýr að hugsanlegri aðildarviðræðum og aðild að ESB. Öðru vísi getum við ekki tekið afstöðu til inngöngu. Engin ástæða er til að treysta ríkisstjórninni til að hafa beina umsjón með slíkri upplýsingagjöf. Engin ástæða er til að trúa í blindni öllum þeim fjölda hlutdrægra álitsgjafa sem fjölmiðlar kalla til. Upplýsingaóreiðan hefði völdin og kjósendur engu nær. Blaðamenn geta það Best væri ef ríkisvaldið fengi hóp sjálfstæðra blaðamanna til að sjá um þessa upplýsingamiðlun. Starf blaðamanna felst jú í því að afla upplýsinga, spyrja spurninga, kafa dýpra og bera niðurstöðuna fram með skýrum, skilmerkilegum og heiðarlegum hætti. Blaðamenn hafa menntun, reynslu og þjálfun í slíkum vinnubrögðum. Afrakstur vinnu blaðamanna birtist fyrir opnum tjöldum, þeir geta ekkert falið. Hlutverk þessa blaðamannahóps yrði að tryggja óháðar upplýsingar um hvað tekur við ef kjósendur samþykkja aðildarviðræður. Þær upplýsingar geta komið úr öllum áttum, ekki síst frá þeim sem eru annaðhvort með eða á móti aðild að ESB. Hlutverk blaðamanna yrði að komast til botns í hvað er rétt, hvað orkar tvímælis og hvað á heima í ruslafötunni. Þegar um vafamál eða óvissu væri að ræða þá hefðu blaðamennirnir á sínum herðum að skýra stöðuna og draga fram andstæðar skoðanir – en þó þannig að kjósendur verði ekki skildir eftir með spurningamerki á enninu. Vinna þessa upplýsingahóps þyrfti að vera lifandi á netinu, andstæðir pólar þurfa að geta komið áliti sínu á framfæri og fengið svör sem eru hafin yfir allan vafa. Mikilvægt er síðan að þó hópurinn fengi laun greidd úr ríkissjóði, þá hlíti hann engu valdboði nema eigin samvisku samhentrar ritstjórnar. Höfundur er ráðgjafi í almannatengslum.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar