Stórt félag - lítil aðstaða Bjarni Helgason skrifar 18. mars 2026 11:45 Helmingur iðkenda landsins á einum stað Skautafélag Reykjavíkur er stærsta skautafélag landsins en árið 2024 æfðu yfir 830 iðkendur hjá félaginu í listskautum og íshokkí. Heildarfjöldi listskauta- og íshokkíiðkenda á landinu öllu sama ár var 1.869 samkvæmt opinberum tölum ÍSÍ. Tæplega helmingur allra skautaiðkenda landsins, eða um 45%, æfði því á sama stað – í Skautahöllinni í Laugardal. Það gefur auga leið að þegar eitt félag og ein höll er með hátt í helming allra iðkenda verður þröngt á þingi og staðan óviðunandi fyrir félag í mikilli uppsveiflu. Allir ístímar nýttir frá morgni til kvölds Það er líka þannig að allir ístímar í Skautahöllinni í Laugardal, á einu 30 × 60 metra svelli, eru nýttir frá því snemma á morgnana og þar til seint á kvöldin. Eina leiðin til að fjölga tímum og mæta þörfum félagsins er að bæta við nýju æfingasvelli, sem lengi hefur verið á dagskrá borgaryfirvalda. Núverandi aðstaða er löngu sprungin og ákall félagsins til borgarinnar hefur verið hundsað ár eftir ár, þrátt fyrir að verkefnið skori mjög hátt í faglegri forgangsröðun íþróttamannvirkja borgarinnar. Mikil fjölgun iðkenda síðustu ár Vandamálið hefur versnað mjög mikið síðustu ár en iðkendum félagsins hefur fjölgað um 43% frá árinu 2021 til 2024. Gott og öflugt starf félagsins og sjálfboðaliða þess á síðasta áratug hefur skilað þessum árangri, en aðstöðuleysi veldur því að ekki er hægt að mæta aukinni eftirspurn. Aðstaðan mætir ekki nútímaþörfum Félagið glímir ekki aðeins við skort á ístímum, því öll aðstaða í Skautahöllinni er bæði sprungin og komin vel til ára sinna og mætir engan veginn nútímaþörfum íþróttafélaga eða íþróttafólks. Klefar eru alltof fáir og úr sér gengnir, og sturtur og salerni sömuleiðis. Engin föst eða almennileg aðstaða er fyrir upphitun, þrekæfingar, lyftingar, dans eða aðrar æfingar sem fylgja starfsemi félagsins. Eitt kalt og opið svæði í höllinni þarf að samnýta undir allt þetta, en því er jafnframt deilt með afmælishópum sem koma til að skauta í Laugardalnum. Til að nýta svæðið þarf í hvert skipti að sækja öll æfingatæki í geymslu, setja þau upp og ganga svo frá þeim aftur að æfingu lokinni. Geymslurými í Skautahöllinni er nánast ekkert og eina félagsaðstaða alls félagsins er lítill, dimmur og gluggalaus salur undir súð. Íshokkídeildin, sem sinnir mjög búnaðarfrekri íþrótt, hefur til umráða þrjár litlar geymslur og eitt 25 fermetra herbergi sem þjónar sem tækjaherbergi, þjálfaraaðstaða, skrifstofa, treyjugeymsla meistaraflokka og allt annað sem fylgir starfsemi íþróttafélaga. Árangur þrátt fyrir aðstöðuleysi Í félaginu hefur öflugur hópur sjálfboðaliða byggt upp starfsemina við þröngar aðstæður. Árangurinn talar sínu máli; karlalið íshokkdeildarinnar varð á dögunum bæði deildar- og Íslandsmeistari. Þetta er þriðji Íslandsmeistaratitill liðsins á fjórum árum. Kvennalið SR hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum og er nú komið í úrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins. Úr röðum SR koma leikmenn sem keppa fyrir Íslands hönd á alþjóðavettvangi – þrátt fyrir að æfa við aðstæður sem mæta engan veginn þeim kröfum sem gera má til afreksstarfs. Tími til að standa við áformin Nú er komið að því að staðið verði við fyrirætlanir um nýtt æfingasvell, danssal, þreksal, félagsaðstöðu og aðra nauðsynlega aðstöðu sem þjónar starfsemi íþróttafélaga í dag, svo áfram verði hægt að byggja upp skautaíþróttir í Reykjavík. Það er ekki skortur á vilja, starfi eða árangri sem stendur í vegi fyrir frekari vexti skautaíþrótta í Reykjavík – heldur aðstöðuleysi. Skautafélag Reykjavíkur hefur sýnt að það getur byggt upp öflugt starf og skilað árangri. Nú þurfa borgaryfirvöld að sýna að þau standi við sitt. Höfundur er hokkíforeldri sem hefur verið sjálfboðaliði hjá SR í 13 ár auk þess að vera varaformaður íshokkídeildar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skautaíþróttir Íshokkí Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar