Er einhver í áskrift að peningunum þínum? Vésteinn Örn Pétursson skrifar 19. mars 2026 08:31 Á dögunum tók ég eftir undarlegri færslu af greiðslukortinu hjá mér og kom ekki fyrir mig hvaðan hún væri. Eftir örstutta leit á netinu kom í ljós að þarna var um að ræða greiðslu fyrir áskrift að vefmiðli sem ég les ekki og man raunar ekki til þess að hafa nokkurn tímann lesið. Ef ég virkilega reyni þá rámar mig þó í að mér hafi þótt góð hugmynd að gerast áskrifandi fyrir einhverju síðan, þótt ég hafi ekki fylgt því eftir með sjálfum fréttalestrinum. Ég ákvað að segja áskriftinni upp en fór svo að hugsa: Hvað annað er ég að borga fyrir sem ég ekki nota? Ég tyllti mér því við tölvuna og renndi í snatri lengra niður yfirlitið. Það er verkefni sem reynist sumum mjög erfitt, enda óþægilegt að sjá þegar peningarnir fara í eitthvað sem maður veit að var sennilega óþarfi. Enn verri er auðvitað sú staðreynd að maður getur engum um kennt nema sjálfum sér. Það versta í stöðunni er þó að gera ekki neitt. Þá er gulltryggt að vitlausustu útgjöldin endurtaki sig og aukist jafnvel enn frekar. Eitt besta dæmið um slík útgjöld eru áskriftir. Nánar til tekið áskriftir sem við notum ekki en borgum samt fyrir. Þegar ég renndi yfir útgjöld síðustu mánaða birtust mér alls konar furðulegar færslur, sem fengu hárin til að rísa þegar ég hugsaði til þess hvað ég hefði getað sparað mér síðasta árið með því að segja þeim upp. Færslur frá streymisveitu sem ég man ekki hvenær ég horfði á síðast, áskrift að hlaðvarpi sem hefur lokið göngu sinni en áfram er rukkað fyrir, og fleira sem mér hefur greinilega þótt sniðugt að kaupa fyrir allt of löngu síðan, en notaði aldrei, blasti við mér. Það fylgdi því ekkert sérstaklega góð tilfinning að hugsa til þess að einhver fyrirtæki út í bæ hefðu verið í áskrift að peningum frá mér, á sama tíma og ég nýtti mér ekki einu sinni þjónustuna sem mér stóð til boða á meðan. Tilfinningin sem fylgdi því að segja upp óþarfa áskriftum var hins vegar mjög góð. Flestum netáskriftum er hægt að segja upp samstundis, þannig að ekki verður tekið af kortinu þínu eftir uppsögn, þótt í sumum tilfellum hafi fólk skuldbundið sig til að borga yfir lengra tímabil. Það er þó betra að höggva á hnútinn strax, en borga út í hið óendanlega. Að segja upp óþarfa áskriftum tók allt í allt tæplega 30 mínútur. Í því fólst að fara yfir kortayfirlitið, leita uppi færslur sem ég kannaðist ekki við, fara inn á vefsíðu hjá viðkomandi fyrirtæki og segja upp áskriftinni. Með þessu sparast þónokkrir þúsundkallar yfir mánuðinn. Í einhverjum tilfellum gæti fólk þó verið að greiða mun hærri upphæðir í áskriftargjöld sem það ekki nýtir sér, og ávinningurinn af því að segja þeim upp því þeim mun meiri. Því er ráð að spyrja sig: Er einhver í áskrift að peningunum mínum? Á vef Fjármálavits, sem er fræðsluvettvangur í eigu Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu og styrktur af Landsambandi lífeyrissjóða, má finna námsefni í fjármálalæsi ætlað ungu fólki. Höfundur er sérfræðingur í samskiptum hjá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármál heimilisins Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar