Heilbrigðisráðherra eflir endó-meðferð Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar 20. mars 2026 10:00 Það er auðvelt að slá upp fyrirsögnum um „fækkun aðgerða“. Það er erfiðara að byggja upp heilbrigðisþjónustu sem raunverulega þjónar sjúklingum. Því miður virðist sú einföldun ráða ferðinni í umræðunni sumra þessa dagana. Fullyrðingar um að verið sé að skera niður þjónustu við konur með endómetríósu standast ekki. Þvert á móti er verið að ráðast í markvissa uppbyggingu á þjónustu við þennan hóp – og færa hana nær því sem skiptir mestu máli fyrir sjúklinga sjálfa: greiningu fyrr, betri móttöku og samfellda meðferð. Ég þekki sjálf hversu djúpstæð áhrif endómetríósa getur haft á lífsgæði og daglegt líf. Þegar maður horfir á þá reynslu verður ljóst að þetta snýst um miklu meira en tölur og mælikvarða – þetta snýst um raunverulegt fólk og raunverulega líðan. Ég hef séð og upplifað hversu þung þessi vegferð getur verið – ekki bara líkamlega heldur líka andlega. Óvissan, biðin og það að upplifa að ekki sé alltaf hlustað af nægri alvöru á það sem maður er að ganga í gegnum getur tekið sinn toll. Þegar maður hlustar á frásagnir kvenna sem hafa gengið í gegnum þetta ferli verður enn skýrara að þetta snýst um miklu meira en kerfi og skipulag – þetta snýst um raunverulegt fólk og raunverulega reynslu. Það er einmitt þessi veruleiki sem undirstrikar hvers vegna við verðum að gera betur og hugsa þjónustuna í heild. Það hefur lengi verið þekkt vandamál að konur með endómetríósu bíða of lengi eftir greiningu og fá ekki viðeigandi þjónustu á réttum tíma. Sú staða lagast ekki með því einu að horfa á fjölda skurðaðgerða. Hún lagast með því að byggja upp kerfið þar sem það bregst fyrst – í fyrstu snertingu sjúklings við heilbrigðiskerfið. Efling þjónustunnar Þess vegna hefur heilbrigðisráðherra lagt sérstaka áherslu á að efla fyrstu stig þjónustunnar. Það felur í sér að styrkja þekkingu og viðbragðsgetu í heilsugæslu, hjá sérfræðingum og ekki síður í skólaheilsugæslu, þar sem fyrstu einkenni geta komið fram. Markmiðið er að stytta þá þrautagöngu sem of margar konur hafa þurft að ganga. Samhliða þessu er verið að efla móttöku og þjónustu á Landspítala, þar sem sérhæfð teymi og aðstaða eru til staðar fyrir flóknari tilfelli. Með því að styrkja þá innviði er tryggt að þær konur sem þurfa á sérhæfðri meðferð að halda fái hana á réttum stað og með fullnægjandi þverfaglegri nálgun. Einnig liggur fyrir að innan heilbrigðiskerfisins er til staðar geta til að sinna þeim fjölda aðgerða sem samkvæmt mati embættis Landlæknis er talinn er þörf á hverju ári. Umræðan snýst því ekki um skort á aðgerðagetu heldur hvernig þjónustan er best skipulögð í heild þannig að hún nýtist konum sem best. Samtal við Endósamtökin Heilbrigðisráðherra hefur átt samtal við Endósamtökin og lagt áherslu á að hlusta á reynslu og sjónarmið þeirra. Þá er unnið markvisst úr tillögum starfshóps um þjónustu við þennan hóp. Sú vinna snýst einmitt um það að byggja upp heildstæða þjónustu – ekki að einblína á einn þátt og kalla það lausn. Endómetríósa er flókinn sjúkdómur sem krefst fjölþættrar og einstaklingsmiðaðrar nálgunar. Skurðaðgerðir eru mikilvægur hluti fyrir suma, en ekki mælikvarði á gæði kerfisins í heild. Ábyrg stefna felst í því að tryggja rétta meðferð á réttum tíma – ekki að hámarka fjölda aðgerða án tillits til heildarmyndar. Í umræðunni hefur einnig verið ýjað að því að ákvarðanir ráðherra byggist á hugmyndafræði fremur en faglegu mati. Slíkt er einfaldlega rangt. Áherslan er á að nýta styrkleika alls heilbrigðiskerfisins – bæði opinberrar þjónustu og samningsbundinna aðila – en gera það á forsendum gæða, öryggis og samfelldrar þjónustu. Það er pólitísk einföldun að halda því fram að lausnin felist í einni tölu um fjölda aðgerða. Það er líka pólitísk einföldun að segja að ákvörðun um magn þjónustu hjá einum þjónustuveitenda sé byggð á hugmyndafræði frekar en faglegu mati. Raunveruleg ábyrgð felst í því að byggja upp kerfi sem grípur sjúklinga fyrr, þjónar þeim betur og fylgir þeim eftir. Konur með endómetríósu eiga betra skilið en slíka einföldun. Heilbrigðisráðherra er að efla endó-meðferð – með því að byggja hana upp þar sem hún skiptir mestu máli. Og þeirri vinnu verður haldið áfram með aðkomu allra hagaðila. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eydís Ásbjörnsdóttir Kvenheilsa Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar