Hamingjan er ekki tilviljun, hún er afleiðing Elliði Vignisson skrifar 20. mars 2026 10:31 Af hverju eru íbúar í sumum sveitarfélögum ánægðari en í öðrum? Ef við vitum hvernig hamingjan verður til, af hverju er það ekki gert alls staðar? Er hamingjan einfaldlega spurning um ákvarðanir? Alþjóðadagur hamingjunnar er í dag. Víða um heim velta samfélög því fyrir sér hvað raunverulega skapar góða líðan, sterk samfélög og hamingju meðal íbúa. Þessir þættir hafa verið skoðaðir á forsendum margra fræðigreina, svo sem sálfræði, hagfræði, mannfræði og félagsfræði. Niðurstöðurnar eru í raun ótrúlega samhljóma: það sem skiptir mestu máli eru samfélagslegt traust, náin tengsl, öryggi, tilgangur og raunveruleg lífsgæði. Það er því ekki tilviljun að í Ölfusi, þar sem við segjum einfaldlega „hamingjan er hér“, mælist ánægja íbúa með því mesta sem gerist á landinu. Nýjasta þjónustukönnun Gallup, sem mælir 12 þjónustuþætti, sýndi íbúa í Ölfusi langt yfir meðaltali á þeim öllum og á toppi samanburðar sveitarfélaga á níu þeirra. Hamingja verður nefnilega ekki til í tómarúmi. Hún er afleiðing ákvarðana. Hún er byggð upp skipulega. Í Ölfusi höfum við lagt áherslu á að byggja upp sterkt samfélag á traustum grunni verðmætasköpunar. Atvinnulífið er ekki bara markmið í sjálfu sér, heldur leið til að skapa raunveruleg lífsgæði. Með öflugum atvinnuverkefnum verða til tekjur sem gera okkur kleift að standa undir öflugu þjónustukerfi sem aftur skilar sér í aukinni velferð og betra daglegu lífi fyrir íbúa. Það er vegna þessara ákvarðana sem leikskólinn hjá okkur er gjaldfrjáls og börn þurfa ekki að bíða eftir leikskólaplássi. Grunnskólinn er framúrskarandi, íþróttalífið einstakt og þátttökugjöld lág. Á þessum forsendum höfum við einnig fjölgað íbúðum fyrir aldraða og byggt nýja dagdeild fyrir þau. Á sama hátt er menningarlífið sterkt, umhverfismál traust og þjónustustigið almennt hátt. En það er líka eitthvað meira. Það er andinn, nálægðin og tilfinningin að tilheyra. Í minni samfélögum eins og hér í Ölfusi verða tengslin sýnilegri. Hér þekkir fólk hvert annað, tekur þátt og skapar saman samfélag þar sem lífinu er ekki bara lifað, það er upplifað. Þess er notið. Á alþjóðadegi hamingjunnar er því kannski rétt að minna á að hamingja er ekki bara tilfinning sem kemur og fer. Hún er afleiðing ákvarðana, stefnu og samfélagslegrar sýnar. Í Ölfusi höfum við valið að byggja hana upp. Við ætlum ekki að tala samfélagið okkar niður. Við ætlum ekki að spilla samstöðunni og samstarfinu. Við ætlum að nálgast framtíðina af virðingu fyrir því sem hefur verið gert og halda áfram af ábyrgð. Og kannski er það einmitt ástæðan fyrir því að slagorðið okkar er ekki bara orð, heldur raunveruleiki: Hamingjan er hér. Höfundur er bæjarstjóri í Ölfusi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elliði Vignisson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ölfus Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira