Er háskólamenntun trygging fyrir húsnæðisöryggi? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar 20. mars 2026 10:31 Staða háskólamenntaðs fólks á húsnæðismarkaði er í brennidepli í nýrri rannsókn Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Niðurstöðurnar munu veita ómetanlegt veganesti í hagsmunabaráttu háskólamenntaðra og hjálpa stjórnvöldum að móta raunhæfar aðgerðir í húsnæðismálum sem henta þurfa fjölbreyttum hópi fólks. Í áraraðir hefur háskólamenntun verið talin ein öruggasta leiðin til starfsöryggis og góðra lífskjara. Samt sem áður blasir við okkur nýr veruleiki þar sem ungt fólk, þrátt fyrir langskólanám og ábyrgðarmikil sérfræðistörf, á sífellt erfiðara með að fóta sig á húsnæðismarkaði. Til þess að samtök háskólamenntaðra geti beitt sér af fullum þunga í þessari mikilvægu umræðu þurfa þau á traustum gögnum og staðreyndum að halda. Af þeirri ástæðu hefur Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands verið fengin til að framkvæma, fyrir hönd aðildarfélaga BHM, Byggingafræðingafélags Íslands, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Lyfjafræðingafélags Íslands, Læknafélags Íslands, Stéttarfélags tölvunarfræðinga og Verkfræðingafélags Íslands, ítarlega könnun á stöðu háskólamenntaðs fólks. Raunsönn mynd af flóknum veruleika Könnunin nær til háskólamenntaðra sem starfa hjá hinu opinbera og á almennum vinnumarkaði. Leitað er eftir svörum frá fólki í fjölbreyttum stéttum, allt frá hjúkrunarfræðingum og læknum sem standa vaktina í heilbrigðiskerfinu, starfsfólki í framlínu velferðarþjónustunnar, til lyfjafræðinga, lögfræðinga, verkfræðinga og annarra sérfræðinga þvert yfir vinnumarkaðinn. Spurningalistinn er hannaður með það að markmiði að draga fram heildstæða mynd af stöðunni og varpa ljósi á þær ákvarðanir sem fólk stendur frammi fyrir í húsnæðismálum. Í þeim efnum er gagnlegt að horfa til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist, en þar er fullnægjandi og öruggt húsnæði skilgreint sem eitt af markmiðunum. Niðurstöður könnunarinnar munu gera okkur kleift að greina með skýrum hætti þær hindranir sem mæta félagsfólki á húsnæðismarkaði, hvort sem um er að ræða erfiðleika við fyrstu kaup eða óöryggi á leigumarkaði. Niðurstöðurnar munu ekki síður skipta máli fyrir stjórnvöld. Á þeim hvílir sú skylda að leggja mat á stöðu húsnæðismála, á grundvelli traustra gagna, hvort styrkja þurfi opinber úrræði fyrir fyrstu kaupendur, endurskoða fjárhæðir og skilyrði húsnæðisbóta eða setja skorður við uppkaupum fjárfesta á markaði þar sem framboð er takmarkað. Húsnæðisöryggi og atvinna háskólafólks Aðgangur að húsnæði á viðráðanlegum kjörum er ein af grundvallarforsendum þess að háskólamenntað starfsfólk geti nýtt menntun sína og sérþekkingu til fulls, tekið virkan þátt á vinnumarkaði og lagt sitt af mörkum til samfélagsins. Stjórnvöld vinna nú að mótun atvinnustefnu til ársins 2035, með áherslu á greinar sem byggja á aukinni framleiðni. Slík stefnumörkun hefur þó takmarkað gildi nema fólkið sem ber uppi vinnumarkaðinn búi við samkeppnishæf starfskjör og traustan, aðgengilegan húsnæðismarkað sem tryggir fyrirsjáanleika og stöðugleika. Öryggi á húsnæðismarkaði er því ekki einkamál einstakra heimila heldur brýnt efnahags- og samfélagslegt hagsmunamál. Það snertir getu íslensks atvinnulífs til að laða að og halda í sérhæft vinnuafl og hefur úrslitaþýðingu fyrir sjálfbæra þróun og verðmætasköpun til lengri tíma. Áskorun um þátttöku Við skorum á allt það fólk sem fær boð um þátttöku að gefa sér tíma til að svara könnuninni. Reynslan og viðhorfin sem þar koma fram eru lykillinn að því að bæta kerfið. Með þátttöku hjálpið þið okkur að draga upp skýra mynd af þeirri þróun sem hefur átt sér stað og af þeim kröfum sem gera þarf til framtíðar. Góð þátttaka er forsenda þess að hægt verði að knýja fram raunverulegar umbætur sem skila sér í auknu húsnæðisöryggi og bættum lífskjörum. Leggjumst öll á eitt við að varpa skýru ljósi á stöðuna, félagsfólki okkar, starfsgreinum þess og komandi kynslóðum háskólamenntaðs fólks til hagsbóta. Höfundur er formaður BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Halldórsdóttir Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar