Það sést hvar Sjálfstæðisflokkurinn stjórnar Guðni Freyr Öfjörð Úlfarsson skrifar 23. mars 2026 16:01 Undanfarið hefur því verið haldið fram að Reykjavíkurborg sé vandamálið þegar kemur að húsnæðismálum. Sú mynd stenst hins vegar illa þegar litið er á staðreyndirnar. Bjarg íbúðafélag, sem byggir upp hagkvæmt leiguhúsnæði án hagnaðarsjónarmiða fyrir almenning, er lykilverkfæri í þeirri uppbyggingu. Það er nokkuð skýrt að Reykjavíkurborg er langstærsti þátttakandinn í lausninni þegar kemur að félagslegu húsnæði og samstarfi við Bjarg og í raun burðarás í uppbyggingu húsnæðisöryggis og velferðar á öllu höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Hér að neðan eru myndir byggðar á gögnum frá Bjargi sem sýna annars vegar fjölda fullkláraðra íbúða eftir sveitarfélögum og hins vegar fjölda íbúða í undirbúningi. Ath: Myndirnar (súlurit) eru unnar af höfundi greinarinnar.Myndirnar gefa skýra heildarmynd af því hvernig uppbygging óhagnaðardrifins leiguhúsnæðis á vegum Bjargs skiptist á milli sveitarfélaga. Þar sést að Reykjavík er með margfalt fleiri íbúðir en önnur sveitarfélög. Hafnarfjörður er næstur, en samt langt á eftir. Hin sveitarfélögin eru nánast dropi í hafið í samanburði. Sérstaka athygli vekur að Kópavogur, sem er næststærsta sveitarfélag landsins, hefur ekki afhent Bjargi eina einustu lóð og hefur hafnað umsóknum þess um lóðir. Það segir okkur að Reykjavík leggur til langmest land og stendur undir uppbyggingunni. Þegar gögnin eru skoðuð í heild bæði það sem þegar hefur verið byggt, það sem er í framkvæmd og það sem er í undirbúningi verður þessi mynd enn skýrari. Reykjavík er ekki aðeins stærsti þátttakandinn, heldur ber hún uppi megnið af uppbyggingu Bjargs. Á meðan önnur sveitarfélög leggja fram brotabrot, stendur Reykjavík undir meginþunganum. Bjarg-verkefnið, eins og það lítur út í dag, stendur og fellur með Reykjavíkurborg. Seinni myndin hér fyrir neðan, sem sýnir fjölda félagslegra íbúða eftir sveitarfélögum, kemur þetta enn skýrar fram: Reykjavík er með um 2.250 íbúðir. Næst kemur Kópavogur með um 334 og Hafnarfjörður með um 280. Mosfellsbær, Garðabær og önnur sveitarfélög eru með mjög lágar tölur. En þegar þessar tölur eru settar í samhengi við íbúafjölda verður munurinn enn skýrari. Í Reykjavík er um ein félagsleg íbúð á hverja 60 íbúa, á meðan í Kópavogi er hlutfallið um ein íbúð á hverja 667 íbúa. Þetta sýnir ekki bara að Reykjavík sé ,,að gera sitt“, heldur að hún er burðarás félagslega húsnæðiskerfisins. Hún er að taka á sig langstærstan hluta ábyrgðarinnar og heldur uppi húsnæðisöryggi fyrir allt höfuðborgarsvæðið ef ekki landinu. Á sama tíma vísa önnur sveitarfélög fólki yfir til Reykjavíkur í stað þess að axla ábyrgð sjálf og byggja upp félagslegt húsnæði en kenna Reykjavíkurborg ávallt um allt sem miður fer. Þetta er ekki bara ósanngjarnt, þetta er pólitísk ákvörðun hjá hinum sveitafélögum höfuðborgarsvæðisins. Stefnan er að gera Reykjavík að blóraböggli fyrir hinum ýmsu vandamálum höfuðborgarsvæðisins, en gera sjálf eins lítið og hægt er til þess að leysa þessi sömu vandamál. Reykjavík er lífæð þessara sveitarfélaga. Annað sem gleymist viljandi að taka fram er að Reykjavík er með næstlægsta skuldahlutfall á öllu höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir að bera uppi þennan stóra hluta af velferðar og húsnæðisverkefnum. Screenshot Hin ranga mýta um gjaldþrot Reykjavíkurborgar þjónar ákveðnum tilgangi Það liggur fyrir að ríkisstyrkta hugveitan Viðskiptaráð vill koma sínum flokkum til valda í borginni, ekki til að styrkja velferð eða húsnæðisöryggi, heldur til að breyta kerfinu í þágu markaðarins. Markmiðið er að draga úr uppbyggingu félagslegs húsnæðis, hægja á eða stöðva lóðarúthlutanir til Bjargs og færa íbúðir smám saman úr vernduðu, óhagnaðardrifnu kerfi yfir á frjálsan markað. Á meðan er ekkert byggt af félagsum íbúðum á móti. Með öðrum orðum sömu flokkar og rústuðu verkamannabústaðakerfið vilja nú gera hið sama við félagsbústaði og Bjarg íbúðafélag. En hvernig komast slíkir flokkar til valda?Með því að virkja reiði, ótta og óöryggi. Með því að endurtaka lygina nógu oft, svo hún hljómi sem sannleikur þannig allur trúverðuleiki er tekinn úr sannleika og staðreyndum. Þannig ná þeir að sannfæra fólk um að kjósa gegn eigin hagsmunum.Það er talað um að „bjarga“ borginni. Að Reykjavík sé á barmi gjaldþrots. Að hér ríki einhvers konar ofurþéttingastefna, að borgin sé að drukkna í skuldum, að borgin sé markvisst að tefja umferð. Þetta er ekki bara rangt, þetta er meðvituð orðræða sem þjónar ákveðnum hagsmunum. Hlutverk þessara orðræðu er að grafa undan trausti, skapa ótta og ryðja brautina fyrir einkavæðingu, þar sem sameiginlegar eignir borgarbúa enda í höndum fárra. Ekki bara Félagslegsbústaðir og Bjarg íbúðir, heldur líka Orkuveitan, Ljósleiðarinn, Carbix, Malbikunarstöðin, Bílastæðahúsin, með öðrum orðum, það á að selja allt, helst hratt og ódýrt. ,,Hægrið hefur raunar haft það á stefnuskrá sinni að selja sem flestar eigulegar eignir Reykjavíkur. Það vill selja bílastæðahúsin, malbikunarstöðina og innviðafyrirtækið Ljósleiðarann. Það vill líka selja Carbfix áður en það verður að enn verðmætari eign og við skulum heldur ekki vera barnaleg gagnvart umræðunni sem nú tröllríður hægrihlaðvörpunum um að það þurfi að selja veituhlutann úr orkufyrirtæki Reykjavíkurborgar til að vinna á hinum ímyndaða fjárhagsvanda.”— Þórður Snær (Kjarnyrt) Reykjavík er ekki vandamálið. Reykjavíkurborg er hluti lausninni. Kæri kjósandi, ætlar þú að kjósa gegn þínum eigin hagsmunum í vor? Eða ætlar þú að kjósa flokka sem standa vörð um eignir okkar borgarbúa, velferðarkerfið, félagslega kerfið og óhagnaðardrifin leigufélög sem hafa veitt hundruðum ef ekki þúsundum öruggt þak yfir höfuðið? Höfundur skipar 9. sæti á lista Pírata í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Guðni Freyr Öfjörð Mest lesið Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Nei-fólkið mitt, þið eruð svo sæt þegar þið hlýðið Viktor Ólason Skoðun Skoðun Skoðun Það er ekki bara fólkið sem þarf að spila með Andri Reyr Haraldsson skrifar Skoðun Hvað þýðir já fyrir bændur? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Ef gervigreind sparar okkur tíma — hver fær hann? Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar Skoðun Hverjir óttast Evrópusambandið? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Við erum á plastbát í ólgusjó Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar Skoðun ESB, afsal eða útvíkkun á fullveldi? Karl Andersson Claesson skrifar Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Nei-fólkið mitt, þið eruð svo sæt þegar þið hlýðið Viktor Ólason skrifar Skoðun Fyrirhuguð hækkun á máltíðum fyrir eldra fólk í Reykjavík Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson skrifar Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Kolkrabbinn, sneiðarnar og eyðing byggðarinnar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar
Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar