Golf

Tiger fékk skell í endurkomunni en úti­lokar ekki þátt­töku á Masters

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tiger Woods vonast til að geta keppt á Masters í næsta mánuði.
Tiger Woods vonast til að geta keppt á Masters í næsta mánuði. getty/Jamie Squire

Eftir rúmlega árs fjarveru sneri Tiger Woods aftur á golfvöllinn í úrslitum TGL-deildarinnar í gær. Endurkoman var þó ekkert sérstaklega ánægjuleg fyrir Tiger.

Hinn fimmtugi Tiger hafði ekki spilað keppnisgolf síðan í febrúar á síðasta ári þegar hann lék með sínu liði, Jupiter Links Golf Club, í annarri viðureigninni gegn Los Angeles Golf Club í úrslitum TGL í gær.

Jupiter Links þurfti að vinna eftir að hafa tapað fyrsta úrslitaleiknum. Tiger og félögum varð ekki kápan úr því klæðinu og þeir fengu skell, 9-2.

Los Angeles fagnaði því sigri á öðru tímabili TGL. Liðið var skipað þeim Tommy Fleetwood, Justin Rose og Sahith Theegala. Fyrir sigurinn fékk Los Angeles níu milljónir Bandaríkjadala, eða 1,1 milljarð íslenskra króna.

„Á endanum vorum við flengdir,“ sagði Tiger eftir leikinn í gær. „Þrír ernir í röð og við svöruðum ekki. Ég hitti ekki í byrjun, þeir fengu meðbyr og við fengum hann aldrei aftur.“

Útilokar ekki Masters

Tiger spilaði síðast á PGA-móti í júlí 2024. Aðspurður eftir úrslitaleikinn í gær útilokaði hann ekki að keppa á Masters sem fer fram á Augusta National vellinum í Georgíu 9.-12. apríl næstkomandi.

„Líkaminn jafnar sig ekki eins og hann gerði þegar ég var 24-25 ára. Það þýðir samt ekki að ég reyni ekki að koma til baka. Ég hef reynt það um hríð. Ég hef glímt við erfið meiðsli síðustu árin sem ég hef þurft að berjast í gegnum og það hefur tekið tíma,“ sagði Tiger.

„Ég held áfram að reyna. Ég vil spila. Ég elska mótið og hef elskað að vera þar síðan ég var nítján ára. Það skiptir mig og fjölskyldu mína miklu máli.“

Tiger hefur fimm sinnum unnið Masters, síðast 2019.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×