Nýtt Eden í Kópavogi? Markús Candi skrifar 25. mars 2026 23:02 Ég man… Þegar ég var barn sóttu afi og amma mig stundum í skólann og saman fórum við í garðyrkjustöðina EDEN í Hveragerði. Þar fékk ég ís, skoðaði plönturnar og heilsaði apanum Bóbó. En það sem situr kannski sterkast eftir er ekki bara það sem ég sá, heldur var það tilfinningin. Ég man sérstaklega eftir rakanum í loftinu, hitastiginu þar inni og lyktinni af gróðrinum.Í langan tíma var EDEN hornsteinn í æsku margra íslendinga, og þegar það brann niður urðu þessar minningar næstum eins og meðlimakort að einkaklúbb. Sumir fá aldrei að vita hvernig það var að ganga inn í þennan gróðurskála og upplifa þetta litla undur. Og hvað þá að sjá Bóbó. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að við ættum að þora að hugsa stórt. Kópavogur hefur alla burði til að hýsa slíkt rými. Vaxandi samfélag, gott aðgengi og tækifæri til að skapa nýjan samkomustað sem skilgreinir bæinn. Gróðurskáli fyrir almenning í Kópavogi. Staður þar sem fólk getur hist, lært, slakað á og byggt upp blómstrandi menningu. Staður sem dregur að bæði heimafólk og ferðamenn. Staður sem er á lífi. Við erum ekki bara að tala um byggingu. Um er að ræða minningar og menningu. Svo að kynslóðir framtíðarinnar geti líka sagt „Ég man þegar…” Höfundur er oddviti Sósíalistaflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Sósíalistaflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Ég man… Þegar ég var barn sóttu afi og amma mig stundum í skólann og saman fórum við í garðyrkjustöðina EDEN í Hveragerði. Þar fékk ég ís, skoðaði plönturnar og heilsaði apanum Bóbó. En það sem situr kannski sterkast eftir er ekki bara það sem ég sá, heldur var það tilfinningin. Ég man sérstaklega eftir rakanum í loftinu, hitastiginu þar inni og lyktinni af gróðrinum.Í langan tíma var EDEN hornsteinn í æsku margra íslendinga, og þegar það brann niður urðu þessar minningar næstum eins og meðlimakort að einkaklúbb. Sumir fá aldrei að vita hvernig það var að ganga inn í þennan gróðurskála og upplifa þetta litla undur. Og hvað þá að sjá Bóbó. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að við ættum að þora að hugsa stórt. Kópavogur hefur alla burði til að hýsa slíkt rými. Vaxandi samfélag, gott aðgengi og tækifæri til að skapa nýjan samkomustað sem skilgreinir bæinn. Gróðurskáli fyrir almenning í Kópavogi. Staður þar sem fólk getur hist, lært, slakað á og byggt upp blómstrandi menningu. Staður sem dregur að bæði heimafólk og ferðamenn. Staður sem er á lífi. Við erum ekki bara að tala um byggingu. Um er að ræða minningar og menningu. Svo að kynslóðir framtíðarinnar geti líka sagt „Ég man þegar…” Höfundur er oddviti Sósíalistaflokksins í Kópavogi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar