Írland v.s.Ísland. Munar bara einum staf? Andrés Pétursson skrifar 26. mars 2026 10:29 Nei-sinnar á Íslandi töldu sig hafa himinn höndum gripið þegar fregnir bárust af mikilli óánægju meðal írskra sjómanna vegna fyrirhugaðs 70% niðurskurðar á makrílveiðum við Írland. Þeir túlkuðu þetta strax sem enn eitt dæmi um að Evrópusambandið væri að níðast á smáþjóð – klassísk frásögn þeirra sem vilja sýna Brussel sem yfirþjóðlegt skrímsli. En þessi túlkun stenst ekki skoðun. Makríll hefur verið ofveiddur árum saman og ICES – alþjóðlegt vísindaráð sem ekkert eitt ríki ræður yfir – metur stofninn nú undir öryggismörkum og mælir með þessum mikla niðurskurði til að koma í veg fyrir hrun hans. Þetta er því ekki „ESB gegn Írlandi“, heldur staða sem skapast af líffræðilegum veruleika og áralangri ofveiði annarra ríkja í Norður-Atlantshafi. Það má alls ekki gera lítið úr óánægju írskra sjómanna – hún er raunveruleg og byggð á verulegum efnahagslegum áhrifum á ákveðnum landsvæðum. En að setja írsku stöðuna upp sem eitthvað sem Íslendingar ættu að bera saman við eigin sjávarútveg er einfaldlega fráleitt. Hlutur sjávarútvegs í landsframleiðslu Írlands er undir 0,2%, en sambærilegt hlutfall á Íslandi er um 6%. Írskur sjávarútvegur stendur undir innan við 0,4% af gjaldeyristekjum þjóðarbúsins, á meðan íslenskur sjávarútvegur skapar um 20% af heildargjaldeyristekjum landsins. Írland byggir sína velfengni á alþjóðlegri fjármálaþjónustu, lyfja- og tæknigeira – ekki fiski. Óánægja Íra stafar fyrst og fremst af stærðargráðu niðurskurðarins, ekki af andstöðu við Evrópusambandið sjálft. Makríll er flökkustofn sem krefst samninga á milli ríkja. Ísland byggir hins vegar sjávarútveg sinn fyrst og fremst á staðbundnum stofnum þar sem landið ákvarðar sjálft hámarksafla. Við erum því einfaldlega í allt annarri stöðu – og þessi samanburður, sem nei-sinnar halda uppi, er byggður á misskilningi eða mikilli einföldun á staðreyndum. Þess vegna voru nei-sinnar á Íslandi ekki bara óheppnir heldur beinlínis að misskilja írsku stöðuna þegar þeir reyndu að nota hana sem dæmi um aukna andstöðu við Evrópusambandið. Samkvæmt nýjustu gögnum frá Eurobarometer telja 91% Íra að aðild að Evrópusambandinu hafi verið landinu til heilla, og stuðningur við aðild er með því hæsta í Evrópu. Írar hafa einfaldlega ekki gleymt því að lífskjör þeirra tóku stakkaskiptum eftir inngönguna árið 1973 – og tengja stöðugleika og velgengni síðasta hálfu aldar í stórum dráttum við aðild að ESB. Höfundur er með M.Sc. gráðu í Evrópufræðum frá London School of Economics og hefur yfir 30 ára reynslu af ýmsu Evrópusamstarfi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Andrés Pétursson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar