174 þúsund króna skutlið Karólína Helga Símonardóttir skrifar 26. mars 2026 13:01 Í fjögur ár hef ég ítrekað lagt fram sömu einföldu og sanngjörnu tillöguna við gerð fjárhagsáætlunar í Hafnarfirði: að bærinn niðurgreiði strætókort barna og ungmenna. Í fjögur ár hefur meirihlutinn hafnað henni. Þetta er ekkert nýtt ákall. Þetta er réttlætismál sem foreldrar, skólasamfélagið og ungmennin sjálf hafa lengi bent á. Í starfi mínu fyrir Viðreisn í fræðsluráði hef ég ítrekað kallað eftir því að bærinn stígi inn, fyrir fjölskyldurnar okkar og fyrir framtíðina. Sprenging í fargjöldum Í dag kostar árskort í Strætó fyrir ungmenni 58.000 krónur. Árið 2021 kostaði sama kort 25.000 krónur. Á aðeins fimm árum hefur gjaldið hækkað um 33.000 krónur. Þetta hefur veruleg áhrif á heimilisbókhaldið. Fjölskylda með þrjú börn á aldrinum 12-18 ára þarf nú að greiða 174.000 krónur á ári til þess að börnin geti ferðast á umhverfisvænan hátt milli skóla, frístunda og vinnu - án þess að foreldrar séu bundnir í stöðugu skutli. Samgöngur næstu kynslóðar Í stefnu Viðreisnar í Hafnarfirði er þetta eitt af lykilmálunum okkar: Aukin notkun ungmenna á almenningssamgöngum skilar sér í minni mengun, minna skutli, minni umferð og meiri lífsgæðum. Þess vegna viljum við að öll börn og ungmenni undir 18 ára fái frítt í Strætó. Þetta er raunhæf, skýr og framtíðarmiðuð aðgerð sem myndi bæta líf bæði barna og foreldra. Jöfnuður, sjálfstæði og framtíðarsýn Ávinningurinn af því að gera Strætó aðgengilegan er margfaldur, en þrír helstu þættirnir eru: Jöfnuður: Öll börn fá jafnan aðgang að samgöngum, óháð efnahag heimilisins. Sjálfstæði: Notkun Strætó eykur sjálfstraust, kennir sjálfstæði og styrkir mikilvæga lífsleikni. Umhverfið: Færri ferðir á einkabílum draga úr mengun og umferðarþunga. Börn sem venjast almenningssamgöngum eru auk þess líklegri til að velja vistvæna ferðamáta síðar á lífsleiðinni. „Fjárhagur Strætó leyfir það ekki“ Í öll þessi ár hefur Viðreisn í Hafnarfirði mótmælt hækkunum á fargjöldum barna. Svör meirihlutans hafa alltaf verið þau sömu: „fjárhagur Strætó sé ekki nógu góður“. Í ljósi þess höfum við lagt fram raunhæft mótvægi: að Hafnarfjörður niðurgreiði strætókort barna og ungmenna. Þeirri tillögu hefur hins vegar verið hafnað í hvert einasta skipti, bæði í fræðsluráði og bæjarstjórn. Tími breytinga er núna Ef Hafnarfjörður ætlar að vera nútímalegt, aðgengilegt og fjölskylduvænt sveitarfélag, þá verður að tryggja að börn geti ferðast örugglega og sjálfstætt án þess að kostnaður sé þar hindrun. Viðreisn mun halda áfram að berjast fyrir þessu máli. Fyrir börnin, fyrir fjölskyldurnar og fyrir umhverfisvænni og betur tengdan Hafnarfjörð. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Hafnarfjörður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samgöngur Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar