Auðveldum kynslóðaskipti bænda Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar 27. mars 2026 08:16 Búnaðarþing var sett síðast liðinn mánudag. Þingmönnum var boðið á setningu þingsins sem ég þáði ásamt mörgum öðrum þingmönnum. Okkur gafst einnig tækifæri til að hitta bændur í framhaldinu í góðu spjalli um hvað þeim er efst í huga og hvernig þeir sjá framtíðina. Nýliðun í greininni er bændum ofarlega í huga. Meðalaldur bænda er hár og því mikilvægt að styðja við kynslóðaskipti í greininni með sem farsælustum hætti fyrir bæði bændur og þjóðarbúið. Ríkissjóður á yfir 400 jarðir. Þar af fara Ríkiseignir með umsýslu á rúmlega 300 jörðum. Ríflega 100 ábúðarsamningar eru í gildi vegna bújarða. Það er umhugsunar- og úrlausnarefni hvað verður um þessar jarðir þegar viðkomandi bændur hætta búskap sökum aldurs eða breyttra aðstæðna. Er möguleiki á að einhver afkomandi eða annar þriðji aðili sé tilbúinn að taka við jörðinni? Eða verður jörðinni skilað til Ríkiseigna fyrir einhverjar greiðslur fyrir ræktunina. Ríkiseignir gætu auðvitað við þessar aðstæður auglýst eftir nýjum ábúenda á jörð sem væri að fara úr ábúð. Nýr ábúandi tæki þá við jörðinni í fullum rekstri með vélum, bústofni og ræktun. Slíkt fyrirkomulag gæti verið tilvalið tækifæri fyrir ungt fólk sem vill hefja búskap. Þannig væri stutt við nýliðun innan bændastéttarinnar. Ríkiseignir gætu einnig boðið nýjum bændum upp á hagstæð lán þegar þeir taka við ríkisjörðum í fullum rekstri. Það myndi auðvelda þeim að kaupa vélar og bústofn af fyrri ábúendum sem þeir hafa fjárfest í ásamt ræktunar á landi í gegnum árin. Fréttir berast af því að Ríkiseignir geri kynslóðaskipti erfiðari á bújörðum með því að banna til dæmis nýbyggingar sem fela í sér nútíma búskapahætti, nema með því skilyrði að ríkið þurfi ekki að kaupa þær byggingar þegar búskap er hætt á jörðinni. Einnig eru sett þau skilyrði þegar ríkisjörð er seld að takmarkað landrými fylgi húsakostum. Ríkiseignir dragi þannig úr mögulegri nýliðun innan bændastéttarinnar. Bændur og öflugur landbúnaður eru þjóðinni mikilvæg á svo marga vegu. Ekki bara til að tryggja matvælaöryggi og búsetu í sveitum landsins. Bændur eru líka góðir landverðir í sjálfbærri landnýtingu náttúruauðlinda okkar. Það er mikilvægt er að ríkið sýni gott fordæmi svo stuðla megi að kynslóðaskiptum til sveita. Það má gera með auknum nýsköpunarstyrkjum og hagstæðum lánum til framkvæmda, nýsköpunar og nýliðunar. Fjárfesting í stuðningi við öflugan landbúnað til framtíðar er þjóðarhagur jafnt fyrir bændur og neytendur. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lilja Rafney Magnúsdóttir Landbúnaður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar