Greið leið til lækkunar stýrivaxta Bogi Nils Bogason skrifar 26. mars 2026 16:15 Hærri verðbólga á Íslandi en í nágrannaríkjum og viðvarandi háir stýrivextir eru ekki náttúruöfl sem enginn ræður við heldur afleiðing okkar ákvarðana og aðgerða. Ef okkur er alvara með að ná verðbólgu niður og halda henni stöðugri til lengri tíma þurfum við að ráðast í markvissar og nokkuð augljósar aðgerðir sem myndu skila sér í mikilli kjarabót fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. Á undanförnum mánuðum hefur Seðlabankinn sent skýr skilaboð og bent á þær aðgerðir sem við þurfum að ráðast í. Það þurfi að koma böndum á ríkisútgjöld og meiri aga á vinnumarkaðsmódelið á Íslandi, því útgjöld geta ekki endalaust aukist umfram framleiðni. Þjóðin á skilið að ráðamenn og aðilar vinnumarkaðarins meðtaki skilaboðin og grípi til aðgerða sem munu geta stuðlað að lækkun vaxta á næsta vaxtaákvörðunardegi Seðlabankans í maí, í stað hækkunar eins og allt stefnir í að óbreyttu. Aðgerðirnar sem þarf að grípa til eru eftirfarandi: Upptaka norræns vinnumarkaðsmódels þar sem svigrúm útflutningsgreinanna ákvarðar hvað er til ráðstöfunar til launahækkana hverju sinni. Allir þurfa að fylgja þessu, líka hið opinbera. Valdheimildir ríkissáttasemjara verði styrktar og þær færðar nær því sem gerist á Norðurlöndunum. Stjórnvöld leggi alla áherslu á að lækka ríkisútgjöld og þar með minnka umsvif ríkissjóðs. Jafnvel fresti atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB um ár til að sýna áherslurnar í verki. Ef þessi atriði yrðu innleidd hratt með trúverðugum hætti eru líkur á að Seðlabankinn lækki vexti strax á næsta vaxtaákvörðunardegi. Það væri bein kjarabót fyrir stóran hluta þjóðarinnar enda skilar hvert prósentustig tugum þúsunda króna lægri afborgun af húsnæðisláni á hverjum mánuði. Að sjálfsögðu kallar framangreint á hugrekki stjórnmálamanna og samstarf allra á vinnumarkaðinum. Ekki eru það miklar fórnir til að komast út úr núverandi ástandi hárra vaxta á sama tíma og við aukum samkeppnishæfni Íslands til framtíðar. Börnin okkar eiga það skilið. Höfundur er forstjóri Icelandair. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bogi Nils Bogason Icelandair Seðlabankinn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Hærri verðbólga á Íslandi en í nágrannaríkjum og viðvarandi háir stýrivextir eru ekki náttúruöfl sem enginn ræður við heldur afleiðing okkar ákvarðana og aðgerða. Ef okkur er alvara með að ná verðbólgu niður og halda henni stöðugri til lengri tíma þurfum við að ráðast í markvissar og nokkuð augljósar aðgerðir sem myndu skila sér í mikilli kjarabót fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. Á undanförnum mánuðum hefur Seðlabankinn sent skýr skilaboð og bent á þær aðgerðir sem við þurfum að ráðast í. Það þurfi að koma böndum á ríkisútgjöld og meiri aga á vinnumarkaðsmódelið á Íslandi, því útgjöld geta ekki endalaust aukist umfram framleiðni. Þjóðin á skilið að ráðamenn og aðilar vinnumarkaðarins meðtaki skilaboðin og grípi til aðgerða sem munu geta stuðlað að lækkun vaxta á næsta vaxtaákvörðunardegi Seðlabankans í maí, í stað hækkunar eins og allt stefnir í að óbreyttu. Aðgerðirnar sem þarf að grípa til eru eftirfarandi: Upptaka norræns vinnumarkaðsmódels þar sem svigrúm útflutningsgreinanna ákvarðar hvað er til ráðstöfunar til launahækkana hverju sinni. Allir þurfa að fylgja þessu, líka hið opinbera. Valdheimildir ríkissáttasemjara verði styrktar og þær færðar nær því sem gerist á Norðurlöndunum. Stjórnvöld leggi alla áherslu á að lækka ríkisútgjöld og þar með minnka umsvif ríkissjóðs. Jafnvel fresti atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB um ár til að sýna áherslurnar í verki. Ef þessi atriði yrðu innleidd hratt með trúverðugum hætti eru líkur á að Seðlabankinn lækki vexti strax á næsta vaxtaákvörðunardegi. Það væri bein kjarabót fyrir stóran hluta þjóðarinnar enda skilar hvert prósentustig tugum þúsunda króna lægri afborgun af húsnæðisláni á hverjum mánuði. Að sjálfsögðu kallar framangreint á hugrekki stjórnmálamanna og samstarf allra á vinnumarkaðinum. Ekki eru það miklar fórnir til að komast út úr núverandi ástandi hárra vaxta á sama tíma og við aukum samkeppnishæfni Íslands til framtíðar. Börnin okkar eiga það skilið. Höfundur er forstjóri Icelandair.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar