Tollabandalag ESB og mörk „sérlausna“ Erna Bjarnadóttir skrifar 26. mars 2026 19:02 Í umræðuþættinum Torginu setti Gunnar Þór Pétursson forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, fram þá hugmynd að mögulega mætti semja um að búvörur yrðu ekki tollfrjálsar frá fyrsta degi við aðild Íslands að Evrópusambandinu, sem hluta af aðlögun eða tímabundinni ráðstöfun. Slík nálgun hljómar aðlaðandi við fyrstu sýn. En hún þarf að standast lagaramma sambandsins, auk reynslu úr aðildarviðræðum annarra ríkja og ekki síður úr viðræðum Íslands og ESB á árunum 2009–2013. Einkavaldbærni og grunnskipan tollabandalagsins Aðild að ESB er ekki hefðbundinn viðskiptasamningur þar sem tveir aðilar móta reglur frá grunni. Hún felur í sér inngöngu í fyrirliggjandi stofnkerfi þar sem valdheimildir eru skilgreindar í sáttmálum sambandsins. Tollabandalag Evrópusambandsins fellur undir einkavaldbærni sambandsins samkvæmt 3. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (TFEU), sem þýðir að aðildarríki hafa hvorki heimild til að viðhalda eigin tollum né semja um frávik frá sameiginlegri tollastefnu, hvorki innan sambandsins né gagnvart öðrum löndum utan þess. Samkvæmt 28.–32. gr. TFEU felur tollabandalagið í sér bann við tollum og gjöldum milli aðildarríkja og sameiginlega ytri tollskrá gagnvart þriðju ríkjum. Tollfrelsi, sem er forsenda frjálsrar farar vöru innan sambandsins, er þannig hluti af sjálfri grunnskipan innri markaðarins. Það er ekki valkvæð útfærsla sem hægt er að semja um í hverju aðildarferli fyrir sig, heldur forsenda aðildarinnar sjálfrar. Af þessu leiðir að tollar milli aðildarríkja falla niður við aðild – ekki í áföngum né samkvæmt sérsamningi, heldur sem bein afleiðing inngöngu í tollabandalagið frá fyrsta degi. Hugmyndin um að fresta tollfrelsi eða viðhalda tímabundinni tollvernd gagnvart öðrum aðildarríkjum gengur beinlínis gegn grundvallarstoðum sambandsins, þar sem tollfrelsi er hluti af sjálfri grunnskipan innri markaðarins. Reynsla aðildarríkja: Finnland og Ísland Þegar Finnland átti í viðræðum um aðild að ESB var í upphafi sóst eftir að tollar á landbúnaðarvörur myndu ekki falla niður frá fyrsta degi. Landbúnaður var eitt viðkvæmasta málið í ferlinu og Finnar lögðu áherslu á sérstakar aðstæður vegna loftslags og framleiðsluskilyrða. Þeir fengu heimildir til sérstakra stuðningsúrræða innan ramma sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar. Þessi hugmynd um frestun tollfrelsis kom hins vegar ekki til greina af hálfu ESB. Tollar gagnvart aðildarríkjum féllu niður frá fyrsta degi og ytri tollar sambandsins tóku jafnframt gildi gagnvart þriðju ríkjum. Annað hefði stangast á við grunnákvæði sáttmálanna. Í aðildarviðræðum Íslands settu Bændasamtök Íslands kröfu um að tollvernd yrði áfram til staðar. Þegar sóst var eftir skýrum svörum um hvort leitað yrði eftir þessu í störfum samningahóps fyrir landbúnað var svarið að þetta væri talið óraunhæft og yrði því ekki gert. Í kjölfarið gengu fulltrúar Bændasamtaka Íslands út af fundi þar sem þessi umræða fór fram og drógu sig út úr starfi samningahópsins. Mörk samningsrýmis í aðildarviðræðum Þessi framsetning forseta lagadeildar Háskólans í Reykjavík er því úr öllu samhengi við það sem þekkt er í fyrri aðildarviðræðum og í andstöðu við grunnreglur ESB. Í ljósi þessa stenst slík framsetning ekki þá lagalegu og sögulegu mynd sem liggur fyrir. Aðildarviðræður snúast fyrst og fremst um aðlögun umsóknarríkis að fyrirliggjandi regluverki. Á sviðum sem falla undir einkavaldbærni eru mörkin fyrirfram skilgreind í sáttmálunum. Umræða um aðild Íslands að Evrópusambandinu þarf að taka mið af þessum stjórnskipulega veruleika. Vilji menn færa rök fyrir aðild er eðlilegt að ræða þá kosti sem hún kann að hafa í för með sér. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að tollfrelsi innan sambandsins er ekki samningsatriði, heldur hluti af aðildinni sjálfri. Höfundur er hagfræðingur og í stjórn Heimssýnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar