Það sem þingmaður vill segja Sigmar Guðmundsson skrifar 27. mars 2026 07:01 Samstarfskona mín, Dilja Mist Einarsdóttir, ritaði grein hér á þessum miðli í gær. Þar sem hún gerir að máli svör utanríkisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, á opnum nefndarfundi utanríkismálamálanefndar fyrr í vikunni. Af því tilefni er rétt að halda nokkrum atriðum til haga. Samskipti utanríkisráðherra við fulltrúa ESB Diljá Mist segir í grein sinni að utanríkisráðherra neiti ítrekað að svara spurningum sem varða samskipti ráðherra við fulltrúa ESB. Þetta hefur raunar verið endurtekið stef stjórnarandstöðunnar, og er sannast sagna orðið nokkuð þreytt. Dagskrá ráðherra er birt á heimasíðu ráðuneytisins. Ráðherra fór ágætlega yfir þau samskipti á fundi nefndarinnar og svaraði þingmanni beint út um þau samskipti sem hún spurði um. Það væri bragur á því ef þingfólk stjórnarandstöðunnar myndu nú bara koma hreint út með sínar ásakanir, ef þau hafa einhverjar og þá kannski rökstyðja þær um leið. Annars gæti mann farið að gruna að þau hafi ekkert annað í hyggju en að hræra upp í almennri umræðu með dylgjum og hálfsannleik. Raunar tiltók Diljá Mist á fundi utanríkismálanefndar að til stæði að óska með formlegum hætti eftir gögnum frá ráðuneytinu þess efnis. Það er vonandi nóg til að setja punkt við þetta sífur stjórnarandstöðunnar. Full og varnaleg yfirráð Diljá Mist greindi frá áhyggjum sínum yfir að samningsmarkmið Íslands vegna hugsanlegra aðildarviðræðna lægu ekki fyrir, einkum finnur þingmaðurinn að það því að orðin „full og varanleg yfirráð“ væru ekki notuð. Höfum eitt skýrt. Ísland hefur full og varanleg yfirráð yfir sínu yfirráðasvæði. Aðild að ESB breytir engu þar um. Eins og Gunnar Þór Pétursson fór ágætlega yfir í góðum þætti „Torgsins“ á RÚV í vikunni. Þá glötuðu t.d. Bretar hvorki, fiski, olíu eða öðrum auðlindum við inngöngu sína í ESB, og það urðu engar auðlindir eftir í ESB þegar Bretar fóru þar út. Hvað varðar samningsmarkmið Íslands, hvað varðar yfirráð yfir fiskveiðilögsögunni þá kemur ágætlega fram í greinargerð þingsályktunartillögunnar um þjóðaratkvæðisgreiðslu að meðal grundvallarhagsmuna Íslands væri að að meðal grundvallarhagsmuna Íslands væri: Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum og ráðstöfun þeirra. Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar og hlutdeild í deilistofnum og eins víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi í alþjóðasamningum og hægt er. Utanríkisráðherra sagði þá enn fremur skýrt á fundi utanríkismálanefndar: „Varðandi ófrávíkjanlegu skilyrðin. Það er alveg ljóst að við munum og ætlum okkur að tryggja yfirráð Íslands yfir fiskveiðilögsögunni,“ og síðar: „Landfræðileg lega okkar, staða okkar [og] styrkur í sjávarútvegi er miklu frekar það sem Evrópusambandið er að sjá sem okkar styrkleika. Þess vegna segi ég að það sé mikilvægt að við séum með kassann úti þegar að því kemur og það er allavega ljóst að það er ýmsum sem þætti erfitt að sjá Ísland vera með sterka stöðu á þessum sviðum,“ og áfram: „En við munum gera allt til þess að tryggja yfirráð yfir okkar auðlindum og það er alveg ljóst að bæði ég og forsætisráðherra – við munum ekki skrifa undir samning sem ekki treystir og tryggir þessa hagsmuni Íslands.“ Hvernig Diljá Mist nær að gera þessi orð eitthvað óskýr í eigin skilning, er undarlegt. En það er nú eins og það er. Það sem þingmaður vill segja Það er nýstárleg leið að reyna að segja hluti með því að segja að einhver annar vilji ekki segja eitthvað. Svo sem gaman að því að þingmenn reyni nýjar leiðir. Það er kannski ekki nema von að málþófsandstaðan sé orðinn leið á að nota hefðbundnar leiðir til tjáningar. Ég væri líka orðinn leiður á þessu ef ég stæði í þessum sporum. En svona samandregið er Diljá Mist greinilega að reyna að skapa þau hughrif að utanríkisráðherra Íslands sé í leynilegum förum erlendis að véla og pretta með íslenska hagsmuni. Ástæðan fyrir því að þetta er ekki sagt hreint út er að fyrir þessu er engin fótur. engin skjöl eða gögn eða neitt annað. Eiginlega frekar dapurlegt allt saman. Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigmar Guðmundsson Alþingi Viðreisn Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Aumingja tryggingafélögin Agnar Þór Guðmundsson,Haukur Freyr Axelsson Skoðun Það sem þingmaður vill segja Sigmar Guðmundsson Skoðun Ég var rekinn Daði Már Kristófersson Skoðun Svona stöðvum við hallarekstur ríkisins, loksins Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Þarf að kæra íslenska ríkið? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Greið leið til lækkunar stýrivaxta Bogi Nils Bogason Skoðun Íslenskir sálfræðingar í aldarfjórðung Pétur Maack Þorsteinsson Skoðun X-R slær Borgarlínu verkefnið út af borðinu Linda Jónsdóttir Skoðun 174 þúsund króna skutlið Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Ímynd er drifkraftur útflutnings Pétur Þ. Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég var rekinn Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Svona stöðvum við hallarekstur ríkisins, loksins Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Auðveldum kynslóðaskipti bænda Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Aumingja tryggingafélögin Agnar Þór Guðmundsson,Haukur Freyr Axelsson skrifar Skoðun Þarf að kæra íslenska ríkið? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ímynd er drifkraftur útflutnings Pétur Þ. Óskarsson skrifar Skoðun Íslenskir sálfræðingar í aldarfjórðung Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Það sem þingmaður vill segja Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Tollabandalag ESB og mörk „sérlausna“ Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Nokkur orð í viskubrunninn Einar Helgason skrifar Skoðun Sameinuð stöndum vér hræsnarar Íslands Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ekki er allt sem sýnist í rekstri Garðabæjar Einar Þór Einarsson skrifar Skoðun Við erum Vinstrið Sanna Magdalena Mörtudóttir,Líf Magneudóttir,Stefán Pálsson,Ásta Þórdís Skjalddal,Arna Magnea Danks,Finnur Ricart Andrason skrifar Skoðun Vistum fanga í íbúðarhverfum Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Greið leið til lækkunar stýrivaxta Bogi Nils Bogason skrifar Skoðun Samningaeftirlitið - bannað börnum! Hannes Friðriksson skrifar Skoðun Er ferðaþjónustan virðiskeðjan sem byggir upp Ísland? Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Uppbygging Hveragerðis og þróun innviða Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Óþarfi að fella niður allt skólahald Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Skoðun Af hverju bera Hafnfirðingar mestu byrðina? Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Virkniseðill - er það eitthvað fyrir Íslendinga? skrifar Skoðun Aðför að opinberum starfsmönnum – burðarásum samfélagsins Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Raunir íslenska pylsusalans Andri Reyr Haraldsson skrifar Skoðun Þorbjörg dómsmálaráðherra — enn einn spillingarpésinn? Einar Steingrímsson skrifar Skoðun 174 þúsund króna skutlið Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Brotist undan þöggun - Endósamtökin 20 ára Silja Steinunnardóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gott að eldast í Hveragerði Lárus Jónsson,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Hollusta eða blekking? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Hádegisblundur og pásur – Með viti fremur en striti Benedikt Jóhannsson skrifar Skoðun Írland v.s.Ísland. Munar bara einum staf? Andrés Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun Við erum Vinstrið Sanna Magdalena Mörtudóttir,Líf Magneudóttir,Stefán Pálsson,Ásta Þórdís Skjalddal,Arna Magnea Danks,Finnur Ricart Andrason skrifar
Skoðun Aðför að opinberum starfsmönnum – burðarásum samfélagsins Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun Brotist undan þöggun - Endósamtökin 20 ára Silja Steinunnardóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar