Að hafna viðræðum er að hafna upplýsingum Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar 28. mars 2026 09:30 Íslendingar ganga að kjörborðinu 29. ágúst næstkomandi. Spurningin sem verður lögð fyrir þjóðina er í raun einföld – en umræðan í kringum hana er þegar farin að flækjast. Við erum nefnilega ekki að kjósa um það hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Við erum að kjósa um það hvort við eigum að halda áfram aðildarviðræðum. Þetta er grundvallarmunur sem skiptir máli. Því viðræður eru ekki skuldbinding um niðurstöðu. Þær eru leið til að afla upplýsinga, skýra valkosti og gera þjóðinni kleift að taka upplýsta ákvörðun síðar. Að hafna viðræðum er því ekki hlutlaus afstaða. Það er ákvörðun um að vilja ekki vita meira! Í raun má segja að við stöndum frammi fyrir einfaldri spurningu: Viljum við klára samtalið eða slíta því áður en niðurstaða liggur fyrir? Ísland er nú þegar í mjög nánu samstarfi við Evrópusambandið í gegnum EES-samninginn og Schengen. Við tökum upp stóran hluta af því regluverki sem mótar okkar efnahagslíf og samfélag. En við sitjum ekki við borðið þegar þær reglur eru mótaðar. Þetta er staða sem margir telja sjálfsagða. Aðrir telja hana ófullnægjandi. En það sem ætti að sameina okkur er að vilja skilja hana til fulls áður en við tökum afstöðu til framtíðarinnar. Viðræður snúast um nákvæmlega það. Þær snúast um að fá skýrari mynd af því hvað felst í mögulegri aðild - hvaða kostir eru í boði, hvaða sérlausnir koma til greina, og hvaða áhrif það hefði á íslenskt samfélag. Það er ekki ábyrg nálgun að loka þeirri umræðu áður en hún hefur farið fram til enda. Þvert á móti er hún fremur ábyrgðarlaus. Í breyttum heimi, þar sem öryggis- og efnahagsmál Evrópu eru í sífelldri þróun, skiptir meira máli en áður að lítil ríki taki upplýstar og yfirvegaðar ákvarðanir um stöðu sína. Það á ekki síst við um Ísland. Það er ekkert róttækt við það að vilja halda áfram viðræðum. Þvert á móti er það hófsöm og skynsamleg nálgun. Flest Evrópuríki líta á slíkt samtal sem eðlilegan hluta af sinni stefnumótun. Að vilja skoða málið til fulls áður en ákvörðun er tekin er ekki öfgafull afstaða – heldur ábyrg. Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst því ekki um að segja já eða nei við Evrópusambandinu. Hún snýst um það hvort við viljum hafa allar upplýsingar á borðinu áður en við tökum þá ákvörðun. Það ætti í raun ekki að vera flókið val. Höfundur er formaður Evrópuhreyfingarinnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar