Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. mars 2026 11:22 Daði Már gaf ekki upp hverjar tekjur skattsins yrðu en það gerði Þórður Snær. Samsett Boðaðar viðbótarskatttekjur fjármála- og efnahagsráðherra á fyrirtæki í fjármálageiranum eiga að skila sex milljörðum til ríkisins. Ráðherrann lét það ekki fylgja með í fjármálaáætluninni hversu hárrar upphæðar skatturinn ætti að afla en það gerði framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar.
Í skoðanagrein á Vísi sem Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, skrifar á Vísi fer hann yfir nýja fjármálaáætlun sem Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í vikunni. „Þar er líka boðað að skattur á banka verði loksins hækkaður á ný. Það á að skila ríkissjóði um sex milljörðum króna í nýjar tekjur á næsta ári til að standa undir samneyslunni,“ skrifar Þórður Snær. Hvergi í kynningu Daða Más né gögnum sem fylgja fjármálaáætlun kemur fram hversu mikilla tekna viðbótarskatttekjurnar eiga að afla. Þá kemur ekki fram hvernig standi til að afla þessara viðbótarskatttekna. Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, sagði í viðtali á Vísi í gær að ákvörðunin kæmi á óvart og að algjör óvissa ríki um hvers konar viðbótarskatta væri að ræða. Hún sagðist ekki hafa fengið nein svör um hvernig Daði Már ætlaði sér að útfæra viðbótarskattheimtuna né hversu miklar skatttekjur hann ætli sér að sækja í ríkiskassann.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Fjármálafyrirtæki Skattar, tollar og gjöld Rekstur hins opinbera Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira