Þöggun - Okkar Borg Sigfús Aðalsteinsson og Baldur Borgþóirsson skrifa 28. mars 2026 15:03 Okkar Borg er nýtt framboð í Reykjavík og var kynnt til sögunnar í október 2025. Framboðið vakti strax mikla athygli fyrir hnitmiðaða og skýra stefnuskrá sem tekur með mjög afgerandi hætti á mikilvægum málaflokkum sem varða hagsmuni borgarbúa. - Stefnuskrá sem vekur gleði og von margra en reiði annara. Forsvarsmenn framboðins voru boðaðir í viðtöl hjá fréttastofum Sýn, Rúv og fleiri miðla og var það vel. Meira að segja mbl.is gerði málinu skil 6.október. Reykjavík síðdegis og vísir.is eru með vinsæla könnun á sínum vegum og þar var gerð könnun í byrjun febrúar sem skilaði Okkar Borg 4.sæti með 6,7% fylgi. Önnur könnun var síðan gerð nú í byrjun mars en viti menn: Okkar Borg var ekki valkostur – Hafði gleymst Fjórða stærsta framboð í fyrri könnun gleymdist. Auðvitað fyrirgefum við þessi mistök og vitum að við verðum klárlega með í næstu könnun. Mistök geta alltaf átt sér stað, við erum jú öll mannleg. Þöggun eða hvað? En snúum okkur að fyrirtækjum sem beinlínis gera út á það að gera kannanir, eru pró eins og kallað er. Þar er sagan því miður önnur: Maskína framkvæmdi könnun frá 2.febrúar – 27.febrúar og kynnti niðurstöður í liðinni viku. Gallup framkvæmdi könnun frá 5.febrúar – 28.febrúar og kynnti niðurstöður í liðinni viku. Í hvorugri þessara kannana var Okkar Borg valkostur – Var ekki höfð með. Þrátt fyrir það er Okkar Borg listuð upp í niðurstöðum beggja – Með 1,2% fylgi hjá báðum. Það hlýtur að flokkast sem kraftaverk að framboð sem ekki er valkostur í könnun nái 1,2% fylgi. Ekki bara einu sinni heldur tvisvar. Eða hvað? Hvernig má það vera að framboð sem kynnt var til sögunnar með pomp og prakt 5. október er ekki með í könnunum? Þeirri spurningu ætlum við að láta ósvarað en til gamans er hér svar Gallup á Íslandi þar sem spurt var, hvers vegna var Okkar Borg ekki með? Við byggjum allt okkar á trausti. Stefnuskráin ógurlega En lítum aðeins á stefnuskránna sem vekur slíkan ótta sumra að gripið er til svo grímulausrar þöggunar: 1. Hælisleitendamál Stjórnleysi á landamærum er á ábyrgð Alþingis, ekki Reykjavíkurborgar. Þjónustusamningum við ríki og stofnanir vegna hælisleitenda verður sagt upp. Borgarstjórn setur hag, lífsgæði og framtíð borgarbúa í fyrsta sæti. 2. Hagræðing í rekstri Ráðningarstopp hjá Reykjavíkurborg. Ekki ráðið í stöður nema brýn nauðsyn krefji. Skýr markmið, skilvirkni og aðhald í öllum deildum borgarinnar. 3. Skipulagsmál Tvö bílastæði með hverri íbúð, annað í bílakjallara þar sem því er viðkomið. Skipulagi Keldnalands og M22 í Úlfarsárdal hafnað og íbúðafjöldi stórlega lækkaður. Hröð uppbygging á Geldinganesi með áherslu á fjölskyldubúsetu. Lágreist byggð í úthverfum og skýr bílastæðaskilyrði alls staðar með 2 stæðum per íbúð. 4. Samgöngumál Borgarlínu og tilheyrandi vegatollum alfarið hafnað. Samgönguúrbætur fyrir alla ferðamáta og mislæg gatnamót þar sem hægt er. Sundabraut í göngum frá Laugarnesi að Geldinganesi. Mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar fara í framkvæmd án tafar. Reykjavíkurborg rekur áfram bílastæðahús og götustæði með hófstilltu gjaldi. 5. Menntamál Samningum um kynjafræðikennslu í leik- og grunnskólum sagt upp og henni hætt. Fornám í íslensku fyrir börn sem ekki tala málið á ábyrgð ríkisins. Einkareknir leik- og grunnskólar fá 100% greiðslu líkt og borgarreknir skólar 6. Okurvextir Þrýstingur á ríkisstjórn um breytingar á peningastefnu. Alþingi breyti lögum um Seðlabanka, lífeyrissjóði og bankakerfi. Sambærilegir vextir og í nágrannalöndum tryggðir. Okurvextir kosta samfélagið hundruð milljarða árlega. Þessari villimennsku verður að linna. 7. Meginmarkmið Hagur, lífsgæði og framtíð borgarbúa skulu ávallt vera í forgangi. Setjum borgarbúa í fyrsta sæti — það er tími til kominn. -------------------------------------------------- Við spyrjum? Hvað er að finna í þessari stefnuskrá sem er svo agalegt að sumum finnist réttlætanlegt að grípa til þöggunar? Aftur ætlum við að láta þeirri spurningu ósvarað en leyfa kjósendum að svara í kjörklefanum þann 16.maí næstkomandi. Okkar Borg ákvað að bjóða borgarbúum upp á nýjan valkost – Valkost sem brýtur niður veggi hinna hefðbundnu flokka borgarinnar. Það er okkar eina markmið. – Að gefa borgarbúum raunverulegan valkost breytinga. Við ætlum því ekki að láta þagga okkur niður heldur halda ótrauð áfram – Með hag, lífsgæði og framtíð borgarbúa að leiðarljósi. Veljum gleði og von – Veljum Okkar Borg veljum X-R Höfundar eru frambjóðendur Okkar Borg X-R Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Okkar borg Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar