„Dagsskipun kerfisins“ Helgi Áss Grétarsson skrifar 29. mars 2026 23:42 „Sjálfstæðisflokkurinn fjármagnar kosningaloforð Samfylkingarinnar“ er blaðagrein eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, sem birt var í Morgunblaðinu 28. september 2019. Núna, tæpum sjö árum síðar, hafa margir spádómar Sigmundar ræst: „Borgarlínan ber öll merki innviðaverkefnis sem mun reynast eilífðarvandamál, kostnaðurinn verður margfalt meiri en lagt er upp með, árangurinn mun lakari en gert er ráð fyrir og rekstrarkostnaðurinn eilífðarvandamál fyrir skattgreiðendur.“ „Fleira fólk verður ráðið í verkefnið, fleiri einstaklingar og stofnanir munu hafa hag af því að það haldi áfram og kerfisræðið mun ráða för. Haldið verður áfram á sömu braut, á sömu teinum á sömu línu.“ Spádómur þáverandi borgarstjóra í maí 2022 Í Fréttablaðinu sáluga, degi fyrir kjördag borgarstjórnarkosninga í maí 2022, skrifaði þáverandi borgarstjóri Samfylkingarinnar: „Á næsta kjörtímabili mun Borgarlínan komast til framkvæmda og Miklabraut fer í stokk – ef núverandi stefna heldur áfram. Annars verður stórt stopp, og umferðin, umhverfið og loftslagsmálin líða fyrir.“ Ekkert af þessu hefur staðist, þótt sami meirihluti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, með nýjum fylgihnöttum, hafi reynt eins og rjúpan við staurinn að fylgja eftir sömu stefnunni um borgarlínuna á yfirstandandi kjörtímabili. Ábendingar Vegagerðarinnar frá september 2024 Í byrjun september 2024 gaf Vegagerðin út fréttatilkynningu sem ber heitið „Virðum staðreyndir varðandi Samgöngusáttmálann“. Þessi tilkynning lýsir vinnubrögðunum við gerð Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í september 2019 og að Vegagerðin hafi ekki komið nálægt því verklagi. Með þessu vildi Vegagerðin, réttilega, firra sig ábyrgð. Stofnunin var þó óbeint með tilkynningunni að staðfesta að bæði framkvæmdahraði og framkvæmdakostnaður Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hafi í upphafi verið stórkostlega vanáætlaður. Vinnubrögðin við gerð sáttmálans haustið 2019 voru því til þess fallin að blekkja almenning. Blekkingarleiknum ber að linna Miðflokkurinn hefur ávallt staðið gegn þeim blekkingarleik sem fylgt hefur borgarlínuverkefninu. Sem fyrr mun flokkurinn núna í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna berjast fyrir því að komast undan „Dagsskipun kerfisins“, svo notuð séu lokaorð í áðurnefndri grein Sigmundar Davíðs frá lok september 2019. Hendum ekki góðum peningum á eftir slæmum. Höfundur er varaborgarfulltrúi og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
„Sjálfstæðisflokkurinn fjármagnar kosningaloforð Samfylkingarinnar“ er blaðagrein eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, sem birt var í Morgunblaðinu 28. september 2019. Núna, tæpum sjö árum síðar, hafa margir spádómar Sigmundar ræst: „Borgarlínan ber öll merki innviðaverkefnis sem mun reynast eilífðarvandamál, kostnaðurinn verður margfalt meiri en lagt er upp með, árangurinn mun lakari en gert er ráð fyrir og rekstrarkostnaðurinn eilífðarvandamál fyrir skattgreiðendur.“ „Fleira fólk verður ráðið í verkefnið, fleiri einstaklingar og stofnanir munu hafa hag af því að það haldi áfram og kerfisræðið mun ráða för. Haldið verður áfram á sömu braut, á sömu teinum á sömu línu.“ Spádómur þáverandi borgarstjóra í maí 2022 Í Fréttablaðinu sáluga, degi fyrir kjördag borgarstjórnarkosninga í maí 2022, skrifaði þáverandi borgarstjóri Samfylkingarinnar: „Á næsta kjörtímabili mun Borgarlínan komast til framkvæmda og Miklabraut fer í stokk – ef núverandi stefna heldur áfram. Annars verður stórt stopp, og umferðin, umhverfið og loftslagsmálin líða fyrir.“ Ekkert af þessu hefur staðist, þótt sami meirihluti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, með nýjum fylgihnöttum, hafi reynt eins og rjúpan við staurinn að fylgja eftir sömu stefnunni um borgarlínuna á yfirstandandi kjörtímabili. Ábendingar Vegagerðarinnar frá september 2024 Í byrjun september 2024 gaf Vegagerðin út fréttatilkynningu sem ber heitið „Virðum staðreyndir varðandi Samgöngusáttmálann“. Þessi tilkynning lýsir vinnubrögðunum við gerð Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í september 2019 og að Vegagerðin hafi ekki komið nálægt því verklagi. Með þessu vildi Vegagerðin, réttilega, firra sig ábyrgð. Stofnunin var þó óbeint með tilkynningunni að staðfesta að bæði framkvæmdahraði og framkvæmdakostnaður Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hafi í upphafi verið stórkostlega vanáætlaður. Vinnubrögðin við gerð sáttmálans haustið 2019 voru því til þess fallin að blekkja almenning. Blekkingarleiknum ber að linna Miðflokkurinn hefur ávallt staðið gegn þeim blekkingarleik sem fylgt hefur borgarlínuverkefninu. Sem fyrr mun flokkurinn núna í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna berjast fyrir því að komast undan „Dagsskipun kerfisins“, svo notuð séu lokaorð í áðurnefndri grein Sigmundar Davíðs frá lok september 2019. Hendum ekki góðum peningum á eftir slæmum. Höfundur er varaborgarfulltrúi og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar