Golf

„Erum heppin að Tiger Woods hafi ekki drepið ein­hvern“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tiger Woods var skömmustulegur þegar honum var ekið heim úr fangelsinu eftir að hann var handtekinn fyrir að aka undir áhrifum á föstudaginn var.
Tiger Woods var skömmustulegur þegar honum var ekið heim úr fangelsinu eftir að hann var handtekinn fyrir að aka undir áhrifum á föstudaginn var. getty/Joe Raedle

Álitsgjafinn Stephen A. Smith segir að fólk verði að hætta meðvirkninni með Tiger Woods og biðlar til hans að hætta að aka undir áhrifum. Hætt sé við að það endi illa.

Tiger lenti í bílslysi í Flórída á föstudaginn. Hann velti þá bifreið sinni er hann reyndi að taka fram úr annarri. Grunur leikur á að Tiger hafi ekið undir áhrifum en það er ekki í fyrsta skipti sem það gerist.

Smith segir að Tiger verði að horfast í augu við vandamálið sem hann glími við.

„Ég er ekki að ýkja og ég er ekki grimmur þegar ég segi þetta: Tiger Woods er fíkill. Ég hef enga sönnun fyrir þessu fyrir utan atvikin sem hann hefur lent í. En byggt á þeim er nokkuð öruggt að segja að Tiger Woods sé fíkill,“ sagði Smith í þætti sínum.

„Dömur mínar og herrar, hann lenti í bílslysi í Kaliforníu 2021 þegar hann dó næstum því. Hann lenti í bílslysi 2017 þegar hann var sofandi á rauðu ljósi ef ég man rétt. Hann glímir við vandamál og það er kominn tími til að segja það.“

Smith segir að rífa þurfi í handbremsuna áður en illa fer.

„Samúðin með Tiger Woods er að þrotum komin. Hann er fjáður og verður aldrei fátækur. Hann er ágætlega settur. En ímynd hans hefur beðið hnekki,“ sagði Smith og rifjaði upp framhjáhaldsskandal Tigers sem var á allra vörum 2009.

Hættu að setjast undir stýri

„Bróðir, þú glímir við eiturlyfjavandamál og ég held, þrátt fyrir að hafa engar sannanir fyrir því, að þetta séu verkjalyf. Ég skil það. Það sem ég skil ekki er þessi tilhneiging til að setjast undir stýri. Þú ert milljarðamæringur. Þú hefur efni á akstursþjónustu. Við erum heppin að Tiger Woods hafi ekki drepið einhvern,“ sagði Smith.

Hann segir að Tiger sé stórkostlegur íþróttamaður en spurði hversu oft fólk ætti að afsaka hann þegar hann ekur undir áhrifum.

„Það er ekki til of mikils mælst að einhver segi við Tiger Woods: Hættu að setjast undir stýri!“ sagði Smith.

Tiger hefur glímt við erfið og langvarandi meiðsli og lítið keppt síðustu árin. Í síðustu viku sneri hann aftur á golfvöllinn þegar hann keppti í úrslitum TGL-deildarinnar.

Eftir leikinn, sem lið Tigers, Jupiter Links Golf Club, tapaði, 9-2 fyrir Los Angeles Golf Club, sagðist hann ekki útiloka að taka þátt á Masters sem hefst 9. apríl næstkomandi. En eftir vendingar síðustu daga verður að teljast ólíklegra en ekki að Tiger mæti til leiks á Masters, fyrsta risamóti ársins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×