Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust Jón Þór Guðjónsson skrifar 7. apríl 2026 09:45 Það er eitthvað skrýtið í gangi. Við erum tilbúin að setja tugi milljarða í að stytta ferðatíma innan Reykjavíkur en á sama tíma er verið að skera niður og fresta framkvæmdum sem halda uppi útflutningssvæðum landsins. Þetta er ekki flókið. Þetta snýst einfaldlega um forgangsröðun. Vestmannaeyjar eru oft settar í flokk sem lítið sveitarfélag en tölurnar segja aðra sögu. Samkvæmt Hagstofu Íslands voru meðaltekjur árið 2023 um 13,9 milljónir króna á mann í Vestmannaeyjum á meðan þær voru um 9,1 milljón í Reykjavík. Það er um 52% munur. Og þetta á ekki bara við um Vestmannaeyjar. Á landsbyggðinni verður til stór hluti þeirra verðmæta sem ríkið lifir á, frá einkaframtakinu, útflutningnum og fólkinu sem skilar inn skatttekjunum. Ef við horfum út fyrir höfuðborgarsvæðið sjáum við sömu mynd víða. Á Austurlandi er stóriðja og útflutningur burðarás hagkerfisins. Á Suðurnesjum er alþjóðaflug og ferðaþjónusta lykilþáttur. Á Norðurlandi og Vestfjörðum er sjávarútvegur undirstaða samfélaga. Þessi svæði eiga eitt sameiginlegt. Þau eru háð samgöngum. Í Vestmannaeyjum er Herjólfur lífæðin. Ef hann stoppar þá stoppar allt. Í stað þess að standa við gefin loforð um samgöngur til Eyja þá eiga framlög til ferjusamgangna að lækka úr 1,7 milljörðum í 1,4 milljarða. Þetta eru bein áhrif á þjóðarbúið. VSV fór vel yfir þessi mál í grein sem birt var á síðu þeirra 26. mars og hægt er að lesa hér: https://www.vsv.is/is/frettir/almennar-frettir/flutningar-eru-ekki-luxus-their-eru-lifaed-atvinnulifsins/ Á sama tíma er verið að setja tugi milljarða í Borgarlínu. Áætlað er að ríkið leggi fram um 60 til 80 milljarða króna í verkefnið. Það er fé sem kemur úr sameiginlegum sjóðum landsmanna, ekki bara frá höfuðborgarsvæðinu. Borgarlínan á að bæta samgöngur og stytta ferðatíma innan borgarinnar sem er í sjálfu sér gott. En hún býr ekki til gjaldeyri, heldur ekki uppi útflutningi og er ekki forsenda verðmætasköpunar. Hún er viðbót. Þetta snýst ekki um að stilla upp landsbyggðinni gegn höfuðborginni en það er erfitt að túlka áætlanir ríkisins á annan máta. Kannski höfum við einfaldlega ekki verið nógu hávær? Við höfum kannski ekki tjáð okkur um borgarlínuna af því „hún snertir okkur Eyjamenn ekki“ en raunin er að hún snertir Vestmannaeyjar mun meira en við gerum okkur grein fyrir. Á meðan við bíðum í ofvæni eftir því að sjá hvort Herjólfur siglir til Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar þá er ríkið að uppfylla draum Samfylkingarinnar um fokdýran bláan strætó í Reykjavík. Það er löngu orðið tímabært að við gerum kröfu til ríkisins um að forgangsraða nauðsynja verkefnum fram yfir gæluverkefni. Við erum að velja vitlaust. Höfundur er oddviti Miðflokksins í Vestmannaeyjum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Borgarlína Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vestmannaeyjar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar