Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason skrifar 8. apríl 2026 10:02 Nýverið gerði ég þau „mistök“ að velta upp áhyggjum um aukna skjáfíkn barna og vakti athygli á hlutverki grunnskóla í þeirri þróun, þá sérstaklega í Kópavogi þar sem spjaldtölvuvæðing grunnskóla hefur farið fram. Í fjölskyldufríum sér maður þetta skýrt. Börn sitja með skjái frá morgni til kvölds. Í sumum tilfellum eru þessi tæki beinlínis afhent af sveitarfélögum, ætluð til náms, en notuð langt umfram það. Á sama tíma eiga börn sífellt erfiðara með einbeitingu, skrift, lesskilning og hrakar í hverri PISA könnun á fætur annarri. Eftir að ég vakti athygli á þessu á samfélagsmiðlum sagði aðili sem vinnur við spjaldtölvuvæðingu að ég væri að bulla og ætti að kynna mér málin betur, í framhaldi sendi hann mér 156 blaðsíðna skýrslu um spjaldtölvuvæðingu Kópavogs. Aðrir varðhundar kerfisins risu einnig á afturlappirnar en það eru þeir sömu og hafa varið skóla án aðgreiningar með kjafti og klóm. Því miður var ég á leið í 5 klukkutíma flug og hafði því nægan tíma til þess að lesa þessa löngu skýrslu. Það getur ekki annar verið en að viðkomandi hafi ekki haft trú á því að ég myndi lesa skýrsluna því hún staðfesti allar þær áhyggjur foreldra sem ég vakti athygli á og gott um betur. Áhugi á lestri minnkar, nemendur segja tækin valda truflun í tímum og ítrekað er hamrað á því að námsárangur sé teygjanlegt hugtak sem megi ekki einskorða við niðurstöður úr samræmdum prófum eða PISA könnunum. Það ætti því engan að furða að námsárangur sé á niðurleið þegar þetta er hugarfar þeirra sem eiga að meta menntakerfið. Á Íslandi er skólaskylda vegna þess að við teljum mikilvægt að öll börn hljóti viðeigandi menntun. Skýrslan sýndi þó skýrt að það virðist mikilvægara að það sé gaman í skólanum en að mæla námsárangur og að skila börnum undirbúnum fyrir áframhaldandi nám. Hér er mikilvægt að komi fram að ég tel lítið við kennara að sakast í þessum efnum. Þeir starfa í kerfi þar sem bekkir eru stórir, tungumál mörg og sífellt fleiri nemendur þurfa aukinn stuðning. Í slíkum aðstæðum verður kennsla gríðarlega krefjandi og er augljóst að skóli án aðgreiningar er ekki að virka. Frá því ég las skýrsluna hef ég rætt við foreldra í Kópavogi sem spurðu börnin sín út í spjaldtölvunotkun í skólanum. Svörin komu mörgum á óvart: margir nemendur eyða töluverðum tíma í leiki sem tengjast ekki náminu og áhorf á YouTube. Þetta er auðvitað óboðlegt. Miðflokkurinn í Kópavogi tekur hnignandi námsárangri barna alvarlega. Við viljum, í samvinnu við skólana, endurskoða forgangsröðun m.a. með því að minnka skjátíma verulega, taka markvisst á lestrarvandanum, leggja fyrir samræmd próf til að mæla árangur milli skóla, tölulegar einkunnir og gefa kennurum aftur vald á skólastofunni með skýrari aðgreiningu. Samhliða því teljum við mikilvægt að skólastarfið sé laust við hugmyndafræðilegan áróður. Skólinn á að undirbúa börn fyrir lífið, ekki móta skoðanir þeirra fyrirfram. Þess vegna viljum við skóla með aðgreiningu þar sem stuðningur er veittur þar sem þörf er á, en félagsleg samvera tryggð eftir því sem hægt er. Varðhundar kerfisins hafa ekki tekið vel í þessar tillögur en Miðflokkurinn er ekki hræddur við að stuða kerfið. Við höfum leyft þeim sem hafa hæst að stýra hlutunum allt of lengi á Íslandi og er löngu tímabært að menntun barnanna okkar sé sett í fyrsta sæti, ekki hugmyndafræði sem kemur skemmtilega út í skýrslum. Höfundur er oddviti Miðflokksins í Kópavogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Jóhannes Guðnason Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar